Úrslit
á sérsýningu Terrierdeildar

Þann
9 sept. stóð Terrier deildin fyrir sýningu
og bauð m.a. Shih Tzu þátttöku. Dómari
var Cindy Petterson frá Svíþjóð.
5 Shih Tzu hundar voru sýndir, þar af 3 rakkar
og 2 tíkur. Shabanoun
Mulberry Max, sem var sýndur í ungliðaflokki,
fékk framhald, Íslenskt meistarastig, og varð
besti hundur tegundar. Íseldar
Mí-Kah sýndi í unghundaflokki, fékk
2 einkunn. Tibets Prides
Way of the Dragon fékk 1. eink. og 2 sæti
í opnum flokki. Fantasía
hjá Íseldar sýndi í ungliðaflokki,
og fékk 2 einkunn. Tibets
Prides Drop Dead Beautiful, keppti í opnum flokki,
og fékk 2. einkunn. Hér
getið þið séð fleiri myndir. Það væri gaman að fá sendar
myndir frá sýningunni ef þið tókuð.
10.9.2006

Shih
Tzu í hundafimi (10.11.06)
Meistaramót HRFÍ var haldið 25 nóvember
sl. í Andvarareiðhöllinni. 30 hundar voru
skráðir til leiks í sex flokkum. Unglingadeildin
keppti þar í þremur flokkum. Það
var Shih Tzu tíkin Ronja og Helga Guðjónsdóttir
sem að sigruðu í unglingaflokki 9-12 ára.
Glæsilegt hjá þeim og frábært
að sjá Shih tzu í hundafimi! Hérna
eru myndir af Helgu og Ronju í fiminni.
Minnig
Þessi
sorglega yfirlýsing
var birt á vef Hundaræktarfélgas Íslands:
,,Okkar
ástkæri heiðursfélagi Emilía
Sigursteinsdóttir (Milla), lést 2. júní
sl. eftir erfið veikindi.
Samkvæmt
ósk Millu hefur verið stofnaður minningarsjóður
í hennar nafni (minningarsjóður Emilíu).
Hlutverk þessa sjóðs er að koma til hjálpar
heimilislausum hundum og finna þeim ný heimili.
Stofnaður hefur verið reikningur í Íslandsbanka
Kirkjusandi, nr. 515-14-608600. - Við erum örugglega
öll sammála um að þetta sé bæði
þarft og gott framtak og hvetjum við því
alla hundavini til að leggja málefninu lið."
Samúðarkveðjur
til fjölskyldu og aðstandenda Emilíu.
07 .6.2004
Stigahæstu
öldungar 2004
Shih
Tzu tíkin INTUCH ISCH Íseldar Y-as-mín
er nú stigahæðsti öldungur 2004 á
sýningum Hrfí, með 29 stig. Næsti
hundur á eftir er með 18 stig. Staðan er eftir
marssýninguna.
14.5.2004
_______________________________________________________________________________________________________________________________
Shih
Tzu í Battersea athvarfinu
í tímaritnu "Paws", sem gefið
er út af Battersea hundaahvarfinu í Bretlandi,
var forsíðumynd og grein um Shih Tzu og umfjöllum
um sérstakt Shih Tzu athvarf þar í landi.
Hérna kemur brot úr greininni:
Hittu "konung ljónanna" - Líflega
og ástúðlega Shih tzu hundinn!
,, Shih Tzu er geðþekkur lítill
hundur, sem vegur um 4-8 kg, Nógu lítill til
þess að passa í Gucci handtösku. En
þessi tegund er mjög miklir hundar, með raunverulegar
þarfir. Carly Mills, sem er yfir Battersea athvarfinu
er stoltur eigandi þriggja Shih Tzu hunda.
,,Shih Tzu eru mannblendnir og fullir af karakter, en þeir
eru líka þrjóskir litlir prakkarar og
því kannski ekki allra auðveldustu hundarnir
til að þjálfa. Eins og með alla hunda
og ketti förum við varlega í að koma Shih
Tzu hundum fyrir á ný heimili. Shih Tzu hafa
mjög einstaklingsbundinn karakter, þannig að
það er mikilvægt að hver hundur passar
við rétta eigandann. Upphaflega og en í
dag eru þessir hundar hafðir sem félagar
og eru flestir Shih Tzuar kátir, ástúðlegir,
vinalegir og traustir.
Þeir
eru hlýjir og góðir, en einnig kröftugir
og "kaldir" hundar. Ó, og var ég búin
að nefna að þeir eru líka fullir af persónuleika?
Þeir geta verið tignarlegir, hugrakkir, blíðir
og vinarlegir við alla sem þeir kynnast. Frábær
varðhundur, Shih Tzu líkar stöku sinnum við
óminn af eigin gelti, en er yfirleitt hljóðlátur
innandyra og tekur vel á móti ókunnugum,
sem eru meðteknir af fjölskyldunni. Leikglaður
og líflegur, þessi hundategund þarf að
vera með fólki og er yfirleitt góður
með öðrum gæludýrum. Shih Tzu er
ekki eins manns hundur. Þegar þú hefur
kynnt honum fyrir börn, sem hafa lært að umgangast
hunda þá kemur þeim yfirleitt mjög
vel saman.
Þetta
er svo sannarlega mannblendinn asískur hundur, og þú
tekur
líklega eftir því að Shih Tzuinn þinn
situr og fylgist með þér tímunum saman
og bíður eftir að þú gefur þér
tíma til að gæla við hann. Kjölturakki?
Upp að vissu marki, þeim finnst svo sannarlega gott
að teygja úr sér hjá þér
og snorka hlóðlega. Tegundin er ekki taugatrekkt
eða erfið að eðlisfari, og eignast vini víðar.
Shih Tzu í borg
Góðar fréttir fyrir borgarbúa, Shih
Tzu aðlagar sig að lífi í bæði
borg sem byggð. Svo lengi sem þú leikur við
þá innandyra, og ferð með þá
reglulega í göngutúra þá líður
þeim vel. Þeim finnst líka mörgum
gott að koma sér vel fyrir upp í sófa,
ef þeir meiga. En ekki láta gabbast af stærðinni.
Þetta eru svo duglegir hundar sem geta líka hlaupið
um með þér í sveitinni, og geta laðað
sig að flestum aðstæðum, líka í
hamagangnum i borginni.
Þetta,
sæta útlitið og ljúfi karakterinn
getur útskýrt það hvers vegna þessir
hundar hafa haldið velli í meira en 2000 ár.
Frá höllum í Kína til ástríkra
heimila um allan heim. Shih Tzu er tilvalinn fjölskylduhundur,
líka fyrir fólk með börn, ef börnin
eru "hundgóð."
Á
síðasta ári tók Bettersea inn 67
Shih Tzu hunda sem þurftu að komast á ný
heimili."
24.4.2004
_______________________________________________________________________________________________________________________________
Ísland
í Bítið
Þann 15. mars sl. Var Shih Tzu tegundin kynnt
í Íslandi í bítið og mættu
sjö hundar og sýndu sig. Brynja Tomer kynnti svo
tegundina og hundana Arven, Villimey, Alex, Legolas, Merlin,
Sól og Von. Kynningin tókst vel og stóðu
bæði hundar og menn sig vel.
15.3.2004
|