|
Kynning
er á einni hundategund í hverju blaði hundaræktarfélags
Íslands. Í þetta sinn var það
Shih Tzu sem umfjöllunin var um.
Dómarinn
nefndi loksins tegundina okkar í viðtali eftir
sýningunna, og hafði hún þetta að
segja:
,,Tilfinningar Önnuliisu til Shih Tzu voru nokkuð
blendnar. Hún sagðist þó hafa verið
mjög hrifin af svörtum og hvítum hundshvolpi
sem hafði allt til að bera sem góður Shih
Tzu. Fallegt höfuð, lágfættur, með
fallegar hreyfingar og framúrskarandi feldgerð.
Besti
hundur tegundar var af mjög líkri tegundargerð
og besti hvolpurinn, og kvaðst hún mjög ánægð
að heyra eftir sýninguna að foreldrar hans
væru báðir frá Finnlandi.
Hún sá einnig Shih Tzu sem hún kallaði
af Amerískri tegundagerð, háfættari,
en oft vantar slíka hunda meiri líkama og fyllingu.
Þessir hundar geta verið áberandi, en það
sagði Annaliisa að Shih Tzu ætti ekki að
vera heldur væri þetta lítill, lágfættur
og sterkur hundur."
| Shih
Tzu jólaball 07.12.08 |
Shih Tzu
jólaball var haldið í dag, og komu saman
Shih Tzuar og eigendur þeirra. Taldir voru um 26 hundar
saman komnir.
Að sjálfsögðu voru teknar myndir sem sjá
má HÉR.

| Alþjóðleg
haustsýning HRFÍ 2008 |
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ
var haldin 27-28 september með pompi og prakt. Shih Tzu
var sýndur á sunnudegi og voru hvorki meira
né minna en 20 hundar skráðir sem er metþáttaka
hjá tegundinni. Einnig var Shih Tzu deildinn með
bás þar sem að tegundin var kynnt og höfðu
margir orð af því hve blíðir og
góðir hundar þetta eru, og eiga hundar og
eigendur þeirra sem voru í básnum hrós
skilið.
Besti hundur tegundar með sitt 3 Cacib var ISCH
Shabanoun Mulberry Max
Besta tík tegundar með þriðja meistarastig
og Cacib var Molly (Varð meistari í dag)
Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða var Ta
Maria Beat The Fantasy
Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða var Gullroða
Gratton (varð einnig besti yngri hvolpur
sýningar sunnudagsins)
Rakkinn sem vann meistarastigið var Perluskins
Because I´m A King
Frekari úrslit hér Dómari var Annaliiisa Heikkinen frá Finnlandi.
Myndir frá sýningunni má finna HÉR
Video frá sýningunni tekið af Kolbrúnu
Eddu, Þetta er allir Shih Tzuarnir sem sýndir
voru í heild sinni! Mjög skemmtilegt
Á Youtube hér fyrir þá sem hafa
áhuga: Partur
1 - Partur
2 - Partur
3 - Partur
4 - Partur
5 - Partur
6
Snyrtikvöld
var haldið og tókst bara vel til þann
1.sept. sl heima hjá Ingibjörgu á Álftanesinu,
þar sem að Shih Tzu eigendur hittust og miðluðu
reynslu sinni. Anja Björg Kristinsdóttir, hundasnyrtir
baðaði og blés Shih Tzu strákinn Cruz
og fór í gegnum hvernig er best að hirða
hundana.
Cruz
fékk sér fegurðarblund eftir snyrtinguna.
| Nýr
Shih tzu til landsins |
Hann heitir
Mika eða Ta Maria Beat
The Fantasy í ættbók og kemur frá
Finnlandi. Hann er í eigu Önju
Bjargar Kristinsdóttur og er 5 mánaða
gamall, svartur og hvítur á litinn.
Dvelur Mika nú í einangrun í Hrísey
og bíður eftir að komast á nýja
heimilið sitt, og hitta nýju Shih Tzu bræður
sína Max og Anton.

Shih Tzu
tík frá Íslandi Perluskins
Because I´m A Princess undan Stínu og
Max, sem býr í Svíþjóð
var sýnd á sérsýningu fyrir Shih
Tzu þar í landi og var Junior class winner með
CK (meistaraefni). 10 mánaða gömul. Skemmtileg
frétt þetta!

Shih
Tzu tíkin Precious sem er nú 9 ára gömul
er alveg ótrúleg. Eigendur hennar sem er fjölskylda
í Bandaríkjunum, tóku hana að sér
því að hún þurfti heimili fyrir
nokkrum árum síðan. Þau búa
í hjólhýsi og Cyndi dóttir þeirra
er fötluð í hjólastól og er
flogaveik. Precious lætur vita um 20 mínútum
áður en Cyndi fær kast, hún hleypur
i kringum hana, vælir og krafsar og sækir móðir
hennar til að láta vita. Precious fékk aldrei
sérstaka þjálfun heldur hefur hún
gert þetta frá upphafi upp á eigin spítur
og hefur reynst þeim mikil lífsbjörg.
Ákveðnar hundategundir virðast sérstaklega
vel geta greint flog áður en manneskjan fær
þau þ.á.m. Þýskur Fjárhundur,
Border Collie, Labrador og Shih Tzu!
Mercury News greindi frá

Það
er svo gaman hvað Shih tzu eigendur eru duglegir að
senda inn myndir af hundunum sínum! Cruz er nýkomin
með sitt eigið albúm sem má sjá hér.
Minnum á að Shih Tzu eigendur eiga kost á
því að eignast myndaalbúm að kostnaðarlausu
fyrir Shih Tzu hundinn/hundana sína hér á
síðunni. sendið tölvupóst á anja@shihtzuhundar.com
| Stofnun
Shih Tzu deildar samþykkt. |
Á
aðalfundi HRFÍ 15. maí sl. var tekin fyrir
umsókn um Shih Tzu deild. Var umsóknin leyfð
og á stofnfundur að haldast innan mánaðar.
Til hamingju með þetta Shih Tzu eigendur.
| Úrslit
sýningar 1 mars 2008 |
Það
voru 16 Shih Tzu hundar skráðir á alþjóðlegu
sýninguna 1 mars 2008. Dómari var Arne Foss
frá Noregi.
Besti hundur tegundar var Danilos
Passion O´the Game með meistarastig. Annars
besti rakki með Cacib var ISCH
Shabanoun Mulberry Max.
Besta
tík tegundar var Gullroða
Lucia með meistarastig. Önnur besta tík
var ISCH Íseldar
Dags-Birta.
Besti
hvolpur tegundar var Perluskins
Because I´m Wise.
Myndir
frá sýningunni má sjá hér


Hvað er skemmtilegra en að skoða myndir af sætum
Shih Tzu hvolpum! Hvolparnir hennar Lunu og Merlin eru 4 vikna
á þessari mynd. Hægt er að sjá
fleiri í albúminu þeirra
Þann 10. janúar fæddust
5 lítil og hraust hvolpaskott. Fyrst komu 4 strákar
og svo ein stelpa í lokin og verða þeir 3
vikna næsta fimmtudag, braggast öll mjög vel:)
Foreldrar eru Íseldar
La Luna og ISCH Camella
The wiched One.
Besti
hundur tegundar var Santosha
Angel Dust "Mayday". Annar besti hundur tegundar
var Perluskins All In My Dream "Lassi". Besti hvolpur tegundar í yngri flokk
var Perluskins Because Im
a King "Brúnó". Besti hvolpur
tegundar í eldri flokk var Gullroða
Aida Dómari var Kitty Sjong frá Danmörku.
Það voru 17 Shih Tzuar sem tóku þátt.
Þetta var í fyrsta skipti sem þeir eru
dæmdir með nýju sýningarreglunum.
Smelltu
hér til að sjá nokkrar myndir frá
sýningunni teknar af Gyðu Hennings
En vantar inn úrslit
nokkurra hundanna, endilega sendið þau inn!
Santosha
Angel Dust.......................Perluskins
All In My Dream......
| Shih
Tzu tík frá Íslandi flutti til Svíþjóðar |
Hún
Bettan (Perluskins Because I´m A Princess) ) er Shih
Tzu tík sem að fæddist hér á
landi 16.9.07 og flutti 3 mánaða gömul út
til Svíþjóðar til ræktanda þar
í landi. Það verður spennandi að
fylgjast með Íslandsfaranum á sýningum
í Svíþjóð
Hún er undan ISCH Tibet´s Prides Drop Dead Beautiful
of ISCH Shabanoun Mulberry Max.
| Úrslit
október sýningar 2007 |
Það
voru 10 Shih Tzu hundar sem sýndir voru á alþjóðlegu
sýningu HRFÍ. Dómari var Jouko Leviska
frá Finnlandi.
Besti hundur tegundar með sitt þriðja meistarastig
og*CACIB var Shabanoun Mulberry
Max
Besta tík og annar besti hundur tegundar var ISCH
Íseldar Dags-Birta "Birta" með sitt
3 cacib.
Besti hvolpur tegundar var Gullroða Lucia "Suri"
hún varð einnig í 4 sæti yfir besta
hvolp sýningar yngriflokks
Nánari úrslit
Myndir
frá sýningunni hér
| Úrslit
sýningar 23 júní 2007 |
9
Shih Tzu hundar sýndu sig í reiðhöllinni
í víðidal á sumarsýningu HRFÍ.
Dómari var Fernando M. Rodrigues, frá Portúgal.
Besti hundur tegundar með sitt annað meistarastig
var Shabanoun Mulberry Max (Max).
Annar besti hundur tegundar með sitt fyrsta meistarastig
var tíkin Fantasía
hjá Íseldar (Ronja).
Annar besti rakki var Tibets
Prides way of the Dragon (Anton), sá þriðji
var Heikir (Bangsi).
Fleiri myndir hér
|