2009 var met ár í fjölgun Shih tzu á Íslandi !11.1.10

Hvorki meira né minna en 24 hvolpar fæddust á síðasta ári 2009. Þarf af 10 tíkur og 14 rakkar hjá fjórum mismunandi ræktendum.

Rut og Anton áttu 6 hvolpa hjá Perluskins ræktun
Lotta og Mika áttu 5 hvolpa hjá Perluskins ræktun
Von og Merlin áttu 3 hvolpa hjá Íseldar ræktun
Aida og Eskill áttu 6 hvolpa hjá Ljósanætur ræktun
Issey og Mika áttu 4 hvolpa hjá Leone-Canes ræktun


Einnig var fluttur inn rakki og tík frá Spovens í Svíþjóð af Guðrúnu Jóhannsdóttur. og Tík af Jónínu Guðný Elísabetardóttur. Tveir hundar þau Suri og Hermann fengu íslenska meistaranafnbót !


Úrslit sýningar 4.10.09

Alþjóðleg sýning HRFÍ var 4 október 2009. Dómari var Birte Scheel frá Danmörku. 15 Shih Tzu hundar kepptu til leiks að þessu sinni.

Tveir nýjir Íslenskir meistarar litu dagsins ljós á þessari sýningu en það var Gullroða Lucia Suri sem varð besti hundur tegundar og fékk sitt síðasta Íslenska meistarastig auk CACIB. Annar besti hundur tegundar var Danilos Passion O´The Game sem fékk einnig sitt síðasta stig til íslensks meistara og sitt annað CACIB. Til hamingju með Suri og Hermann!


Hægt er að sjá öll frekari úrslit HÉR og myndir frá sýningunni HÉR

Afmælishátíð HRFÍ 27.8.09

Glæsileg afmælishátíð HRFÍ var haldin í Víðidalnum í gær, þar voru m.a. kynntar hundategundir og var Shih tzu deildin með bás. Tegundin vakti að sjálfsögðu lukku fyrir skemmtilegt skap og fallegt útlit. Hér má sjá nokkrar myndir frá hátíðinni.

Afmælissýning HRFÍ 23.8.09

Laugardagur, Dómari Helle Dan frá Danmörku:
BOB + CC: Danilos Passion O´the Game
BR-2 + CK: Ta Maria Beat The Fantasy

BOS + CC: Santosha Angel Dust
BT-2 + CK: Isch Molly
BT-3+ CK: Íseldar Eir

Sunnudagur, Dómari Kari Järvinen frá Finnlandi
BOB: ISCH Molly
BT-2 + CC: Íseldar Eir
BT-3 + CK: Íseldar Orka

BOS: Engin rakki í úrslitum

ISCH Molly og Danilos Passion O´the Game

Sámur 21.8.09

Þá er Sámur kominn út og glæsilegur að vanda. Það er viðtal við dómarana eftir sýninguna og nefndi Guy Jeavons tegundina okkar. Hann sagðist mjög ánægður með þá bestu hunda þeirra tegunda sem hann dæmdi. Hann Sagði að Shih Tzu hundarnir hefðu verið af ólíkum tegundagerðum og af misjöfnum gæðum.

Sumarsýning HRFÍ 29.6.09

16 Shih Tzu hundar tóku þátt á sumarsýningu HRFÍ 28 júní sl. Dómari var Guy Jeavons frá Kanada.

Besti hundur tegundar með meistarastig var Ta Maria Beat The Fantasy "Mika"
Besti hundur tegundar 2 með meistarastig var Danilos Prelude Promising Girl (Tee-Wee)


Sámur 26.5.09

Frank Kane nefndi tegundina okkar örlítið í Sámi. Hann sagði að Shih Tzuinn sem vann (Perluskins Tom Cruise) hafi verið af góðri tegundagerð og ætti framtíðina fyrir sér!

Hreyfingar í Shih Tzu 24.5.09

Hér er áhugaverð grein sem birtist í blaðinu Oriental Express & Dogs in Canada eftir Jane E. Couch Shih Tzu ræktanda og dómara.

It seems to me that as I watch at dog shows of late, something is happening to the movement of our beautiful Shih Tzu. One only has to view old tapes of the breed to see the difference... Lesa Meira

 

Dómararáðstefna! 13.4.09

Á dómararáðstefnu fyrir Tíbetskar tegundir, var rætt um útlit, galla og kosti tegundanna sem að tilheyra þessum hóp þá m.a. Shih Tzu. Sá sem hélt fyrirlesturinn var Paul Standon, ásamt Kenneth Edh og Anniku Klang.

HÉR má lesa skýrsluna, sem gerð var og hvet ég alla ræktendur og áhugafólk um tegundina að lesa þetta og kynna sér hvað þykir miður fara í tegundinni í dag, hvaða galla þarf að varast í ræktun og hvað þarf að draga fram.

Hér eru nokkur þýdd atriði, sem komu fram á ráðstefnunni

Það sem dómarar þurfa að hugsa um með hund inn í dómhring:

  • Kanna með höndunum hvað er í raun undir feldinum.
  • Vera vakandi yfir smáum augum, ónægum bringum, ótegundartýpískum hreyfingum og
    ónægum bakvinklum
  • að axlir séu vel lagðar aftur
  • Hjá svörtum/dökkum hundum verður að þreyfa vel og skoða andlitið til þess að sjá
    vel smáatriði sem sjást auðveldar hjá ljósum hundum með berum augum
  • Skrifa það í umsögnina hjá hundum sem hafa færri en sex tennur milli vígtanna í
    neðri kjálka.
  • Athugið ef hundurinn sé sýndur "hengdur upp" í taumnum
  • Vera vakandi yfir ef hundar sýna enga afturfótaspyrnu inn i hring

Hvað er líkt og ólíkt með Lhasa Apso og Shih Tzu

  • Hæð er svipuð hjá báðum tegundum
  • Shih Tzu er búklengri en Lhasa Apso
  • Höfuðuði á Shih Tzu á að vera hringlaga frá öllum hliðum, séð ofan frá. En höfuð Lhasa Apso
    er örlítið hvelft.
  • Shih Tzu hefur brattara og hærra stop (ennisbrún)
  • Shih tzu hefur hringlaga augu, Lhasa apso hefur meira möndlulaga.
  • Bitið er svipað í báðum tegundum
  • Shih Tzu hefur dýpri og breiðari brjóstkassa
  • Líkami Shih Tzu er dýpri, og nær vel niður fyrir olnboga
  • hvelfdur búkur og örlítið flatur að neðan.
  • Shih Tzu er með hærra sett og borið skott (teapot handle)
  • Shih Tzu hefur breiðari bakhluta en Lhasa Apso
  • Feldur er næstum sá sami hjá báðum tegundum
  • Báðar tegundir skulu hafa langar og góðar fram og aftur hreyfingar. Shih Tu hefur baksparkið svo allir þófinn sjáist, sem Lhasa hefur ekki.
  • Shih Tzu er glaðlegri í framkomu og auðvaldari að ná sambandi við
  • Shih Tzu má vera lifur litaður ólíkt lhasa Apso

Gallar í tegundinni Shih Tzu

  • Axlir og frontur
  • Of lítil augu
  • Of lítill (ekki nógu breiður) undirkjálki
  • Ónægir afturvinklar
  • Léleg baklína (ekki bein, heldur há að aftan eða ójöfn)
  • Of margir hafa ekki rétta afturfóta sparkið í hreyfingum
  • Hundar of stuttir í baki
  • Í tegundinni er of mikið um flöt og of lág skott
Síðan er 10 ára!! 14 .3.09

Shih Tzu síðan okkar er orðin 10 ára gömul! Það er merkilegt hve tímanum líður hratt! Á síðunni hefur verið birt sýningarúrslit, hvolpafréttir, ýmis fróðleikur sem og gagnagrunnur yfir allar ættbækur Shih Tzua á landinu, myndasafn svo eitthvað sé nefnt og er alltaf passað upp á að hún skuli vera óhlutdræg því að þetta er jú síðan okkar allra og er öllum frjálst að senda inn myndir og fréttir :-)

Höldum áfram að senda inn efni á síðunna til að halda henni lifandi og skemmtilegri. Senda tölvupóst

Úrslit sýningar 3.3.09

Á alþjóðlegu sýningu hrfí um helgina voru 25 shih tzuar skráðir. Dómari var Frank Kane frá Bretlandi.
Frekari úrslit hverra hunda má finna Hér.

Besti hundur tegundar með CACIB var ISCH Molly
Besti hundur tegundar 2 með sitt fyrsta meistarastig var Perluskins Tom Cruise
Besti öldungur tegundar var ISCH Tangse Spider Madame
Besti hvolpur tegundar, yngri: Íseldar Orka
Besti hvolpur tegundar, eldri og 3 Bhv sýningar var Danilos Prelute Promising Girl

Myndir komnar hér! Ljósmyndari sýningar, Allý Gísladóttir.

Tvær nýjar tíkur til landsins  7.1.09

Það eru tvær Shih Tzu tíkur sem dvelja nú í einangrun. Það er Spovens Black Starlet eða Nína sem kemur frá svíþjóð og er hún í eigu Guðrúnar Jóhannsdóttur (Perluskins)
Nína er einlit svört að lit. Hún er undan Sænsku hundunum Tangse Midnight Rambler og Firedragon's Let's Play Smart.

Svo er það Danilos Prelude Promising Girl eða Tee Wee sem er í eigu Elísarbetar Dottý. Hún er gull og hvít á litin og kemur frá Noregi. Tee Wee er undan Ameríska rakkanum Multi Ch Rapture Prelude to Ovation og norsku tíkinni Danilos Wee-Me Ophelia.


Nína .............................................................Tee Wee

Shih Tzu Í Sám  19.12.08

Kynning er á einni hundategund í hverju blaði hundaræktarfélags Íslands. Í þetta sinn var það Shih Tzu sem umfjöllunin var um.
Dómarinn nefndi loksins tegundina okkar í viðtali eftir sýningunna, og hafði hún þetta að segja:

,,Tilfinningar Önnuliisu til Shih Tzu voru nokkuð blendnar. Hún sagðist þó hafa verið mjög hrifin af svörtum og hvítum hundshvolpi sem hafði allt til að bera sem góður Shih Tzu. Fallegt höfuð, lágfættur, með fallegar hreyfingar og framúrskarandi feldgerð.
Besti hundur tegundar var af mjög líkri tegundargerð og besti hvolpurinn, og kvaðst hún mjög ánægð að heyra eftir sýninguna að foreldrar hans væru báðir frá Finnlandi.
Hún sá einnig Shih Tzu sem hún kallaði af Amerískri tegundagerð, háfættari, en oft vantar slíka hunda meiri líkama og fyllingu. Þessir hundar geta verið áberandi, en það sagði Annaliisa að Shih Tzu ætti ekki að vera heldur væri þetta lítill, lágfættur og sterkur hundur."