Úrslit frá alþjóðlegri sýningu HRFÍ 20-21 nóvember 2010 22.11.2010


20 Shih Tzu hundar voru skráðir á alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ 28-29 ágúst 2010. Dómari var Birgitta Svarstad frá Svíþjóð.

Besta hundur tegundar: Danillos Prelude Promising Girl (Tee-Wee) með sitt annað meistarastig og CACIB. Eigendur Elísabet Kristjánsdóttir / Jónína Guðný Elísabetardóttir

Besti hundur tegunar af gagnstæðu kyn: ISCh Ta Maria Beat The Fantasy (Mika) með sitt þriðja CACIB. Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir

Annars besti rakki: Perluskins Everyones Fantasy (Úlli) með Íslenskt meistarastig og vara CACIB. Eigandi: Anja Björg Kristinsdóttir

Önnur besta tík: Íseldar Orka. Eigandi: Stefanía Sigurðardóttir
Þriðja besta tík:
ISCh Santosha Angeldust. Eigandi: Soffia Kwasensko
Fjórða besta tík: Perluskins Endlesly Devoted. Eigandi: Rúna Kærnested Óladóttir Engin hvolpur komst áfram


Mika var sýndur með þremur afkvæmum (Úlli, Primo og Monza) og fékk hópurinn excellent og heiðursverðlaun og var því besti afkvæmahópur tegundar og endaði sem besti afkvæmahópur sýningar á laugardeginum.

Fleiri myndir frá sýningunni eru á deildarsíðu Shih Tzu, teknar af Emil Kristjánsyni. Sjá hér

Úrslit frá haustsýningu HRFÍ 28.-29. ágúst 22.11.2010

15 Shih Tzu hundar voru skráðir á alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ 28-29 ágúst 2010. Dómari var Jean Lanning frá Bretlandi.



Besti hundur tegunar: ISCh Ta Maria Beat The Fantasy (Mika) með CACIB.
Besta hundur tegundar af gagnstæðu kyni: ISCh Santosha Angeldust  (Mayday) með CACIB

Annars besti rakki: Persluskins Do You Feel Lucky (Bangsi) með sitt fyrsta Íslenskt meistarastig
3 besti rakki: Leone-Cane´s Primo, með vara meistarastig.
4 besti rakki: Perluskins Tom Cruise

Önnur besta tík: Íseldar Eir með sitt annað meistarastig og vara CACIB.
Þriðja besta tík:
Íseldar OrkaMika var sýndur með þremur afkvæmum (Úlli, Primo pg Aldo) og fékk hópurinn excellent og heiðursverðlaun og var því besti afkvæmahópur tegundar.

Sumarsýning HRFÍ 8.6.2010

Sumarsýning HRFÍ var haldin 6.6.2010 og var dómari Paul Stanton. 20 Shih Tzu hundar voru skráðir til leiks. Tegundin varð einum meistara ríkari, þar sem Mika (Ta Maria Beat The Fantasy) fékk sitt síðasta stig til meistara!! Ljósanætur Ava varð svo besti hvolpur sunnudagsins!

Besti hundur tegundar var ISCh Santosha Angel Dust
Besti hundur tegundar 2, var Ta Maria Beat The Fantasy, með sitt síðasta meistarastig og varð Íslenskur meistari!

Besti hvolpur tegundar 6-9 mán. var Ljósanætur Ava sem varð svo besti hvolpur sýningar! (BIS puppy)
Besti hvolpur tegundar II, 6-9 mán var Leone-Cane´s Primo Myndir frá sýningunni Hér (photos)

Heimssýningin í Danmörku 1.7.2010

Heimsýningin var haldin í Danmörku núna sl. helgi eins og mörgum er eflaust kunnugt um. Það voru kanadískir hundar sem báru sigur úr bítum að þessu sinni hjá Dómaranum sem var frá Portúgal. Besti hundur tegundar var WINTERHOLME AMERICAN GIRL, og besti hundur af gagnstæðu kyni var WENRICK'S LOOK AGAIN. Öll úrslitin má sjá hér

Umræður hafa vaknað vegna mikils mun á tegundatýpum hjá Shih Tzu, sem oft er kallað Ameríska og Evrópska týpan, sem þótti mjög greinilegt á þessari sýningu. Einnig þar sem sýningin var haldin í FCI landi. Einnig hve öðruvísi þeir séu oft sýndir í dag hvað varðar hraða og annað. Og stundum fannst áhorfendum þetta vera keppni um hver gat hlaupið hraðast með Shih tzuinn sinn! Einnig hver væri mest "stylish", með lengsta feldinn og jafnvel sem háfættastir, en ekki rétta tegundagerð hvað varðar byggingu og hreyfingar. Þannig að það er hiti eftir þessa sýningu, og margir furða sig á hvort tegundinni verði hreinlega skift í tvennt, Amerískur og Enskur Shih Tzu. - Video tíkarhvolpar - Video rakkar - Video tíkur

pics by Brigitte Huch's
Besti hundur tegundar
BOB á heimsýningunni núna 2010 frá Kanada


Rakkinn frá Svíþjóð sem vann á síðustu heimsýningu 2009. Nokkuð mikill munur á þessum tveimur hundum.

Endilega ef þið viljið senda inn frétt, grein, myndir eða eitthvað sem ykkur liggur á hjarta er emailið anja@shihtzuhundar.com

PRA 19.6.2010

PRA fannst í tveimur Shih Tzu tíkum á Íslandi í síðustu augnskoðun í tengslum við HRFÍ sýninguna. PRA (Progressive Retinal Atrophy) er augnsjúkdómur sem nefnist vaxandi sjónrýrnun á Íslensku og er ættgengur kvilli. Þessi sjúkdómur þekkist í mörgum tegundum og má lesa sér meira til um þennan sjúkdóm, en fjöldin allur af góðum greinum er til, hér t.d. á ensku, og hér á íslensku. Einnig hér á síðunni undir "Um tegundina"

Sumarsýning HRFÍ 8.6.2010

Sumarsýning HRFÍ var haldin 6.6.2010 og var dómari Paul Stanton. 20 Shih Tzu hundar voru skráðir til leiks. Tegundin varð einum meistara ríkari, þar sem Mika (Ta Maria Beat The Fantasy) fékk sitt síðasta stig til meistara!! Ljósanætur Ava varð svo besti hvolpur sunnudagsins!

Besti hundur tegundar var ISCh Santosha Angel Dust
Besti hundur tegundar 2, var Ta Maria Beat The Fantasy, með sitt síðasta meistarastig og varð Íslenskur meistari!

Besti hvolpur tegundar 6-9 mán. var Ljósanætur Ava sem varð svo besti hvolpur sýningar! (BIS puppy)
Besti hvolpur tegundar II, 6-9 mán var Leone-Cane´s Primo

Opin Shih Tzu sérsýning! 7.6.2010

Hvað er opin sýning? smelltu til að vita meira
Opin sýning Shih Tzu deildar var haldin 3 júní 2010 í Garðheimum. Dómari var Annukka Paloheimo frá Finnlandi. Sýningin tókst í alla staði frábærlega, og hafði dómarinn orð á því hvað þetta væri vel skipulagt og andrúmsloftið gott. En þess má geta að Annukka er fyrrum formaður Shih Tzu klúbbsins í Finnlandi og áhugamanneskja um tegundina. 35 hundar voru skráðir til leiks, sem er mesti fjöldi Shih Tzu á sýningu á íslandi. Einnig keppti 12 ára gamall öldungur, hún Arven! Sérstakur Freestyle flokkur var fyrir klippta hunda. Þetta er nýtt hér á landi, og tókst mjög vel til!

Þeir sem gáfu verðlaun voru Dýrheimar, Hvuttar.is, Dekurdýr, B-dog design, Hundasnyrtistofan, Miaa design gáfu rósettur, Paradise Passion gaf BIS bikar og Leone-Canes gaf BIS-2 bikar.




Besti hvolpur tegundar og 2. besti hundur sýningar varð Leone-Cane´s Primo
Annar besti hvolpur tegundar var systir hans, Leone-Canes Bianca

Besti hundur tegundar var Ta Maria Beat The Fantasy (Mika), sem varð einnig besti hundur sýningar!
Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni varð hin unga Perluskins Endlessly Devoted (Monza)

Besti hundur tegundar í Freestyle flokki varð Gullroða Putzini (Óðinn) sem varð 3 Besti hundur sýningar.
Annar Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni í Freestyle flokki varð ISCh Gullroða Lucia.

Besti öldungur tegundar og 4 besti hundur sýningar varð Íselda Ar-ven.

Ganga í grafarvogi! Skítatínsla 6.5.2010

Shih Tzu deildin stóð fyrir skítatínslu í Grafarvogi eftir ummæli í Grafarvogsblaðinu. Mæting var góð og blessunarlega var ekki mikið um skít. Gren birtist svo í síðasta tölublaði Grafarvogsblaðsins.

Snyrtikvöld 5.5.2010

Snyrti og toppakvöld var haldið í sólheimakoti 4 maí sl. á vegum Shih Tzu deildar HRFÍ. Var mæting góð og skemmtu hundar og eigendur sér vel. Margrét Kjartansdóttir, Anja Björg Kristinsdóttir og Stella Sif Gísladóttir hundasnyrtar mættu á svæðið og sýndu réttu hantökin. Boðið var upp á kaffi og vöfflur.
Myndir hér að neðan teknar af Önju Björgu Kristnsdóttur og Berglindi Magnúsdóttur. Seinasta myndin er eftir Sólveigu, eiganda Primo.
Ef músarbendilinn er hafður yfir myndunum sést myndatexti.

Fylgst með Möggu snyrti, og Aidu Inga og Aldo Sigrún Arna og Freyja

Systkinin frá Perluskins Bangsi og FreyjaBerglind að spreyta sig í toppagerð, modelið er Bangsi Sætt andlit á Aldo, Anja kennir þar að setja teyjur í skeg

Crufts 24.3.2010

Þó nokkrir Shih Tzu eigendur lögðu leið sína til Burminghan nú í mars 2010 á Crufts, stærstu hundasýningu í heimi, þar á meðal við fjórar undiritaðar. Shih Tzu var sýndur á laugardeginum og má með sanni segja að það var skandinavískur sigur í ár! Því það voru hundarnir Multi Ch. Fossella Kama Sutra og Ch. Ta Maria Fantasy Forever sem báru sigur úr bítum! Bæði ræktuð og búa á Norðurlöndunum. Ofsallega fallegir, tegundatýpískir Shih Tzu hundar sem voru vel af sigrinum komnir. 170 Shih Tzuar voru skráðir til leiks hjá breska dómaranum og specialista í tegndinni Mr David Iley. Þetta var mesta skráning hjá tegund í Utility grúppunni.

Einnig þótti okkur gaman að sjá bróðir hans Mika, hann Niilo spígspora flottur um sýningarhringinn. Gæði hundanna í heild þótti okkur misjöfn, eins og annarstaðar. Og var mikil munur á síðstu og bestu hundunum í gæðum. Feldhirða virtist lika vefjast fyrir þó nokkrum eigendum og eða feldgæði. Þetta var mjög skemmtileg sýning, enda sátum við límdar við Shih Tzu hringinn, og notuðum hina dagana til þess að versla og skoða okkur um, enda margt um að vera og sjá bæði á Crufys og í skemmtilegri borg, Burmingham !


Frábær ferð, þrátt fyrir smá ævintýri á leiðinni út :)
Anja, Allý, Inga og Mæja.


Bestu hundar tegundar!
................................................................Niilo flotti

Úrslit sýningar 27.2.2010

Mika 2. besti hundur í grúppu! og Primo 2. besti hvolpur dagsins!
30 Shih Tzu hundar voru skráðir til leiks, metþáttaka var hjá tegundinni, sem er frábært enda mikið af hvolpum sýndir. Einnig var metþáttaka á sýningunni allri. Dómarinn okkar var Espen Engh frá Noregi, sem talin er mjög hæfur Shih Tzu dómari og áhugamaður um tegundina. Gaman var að sjá Shih Tzu loksins í sæti í tegundarhóp 9, einnig í sæti í besta hvolp sýningar. Svo ekki má gleyma að Helga Þöll með Shih Tzu í 2 sæti í ungum sýnendum. Mayday varð svo íslenskur meistari!

Flottir feðgar, Primo og Mika komust í sæti á rauða dreglinum!

Besti hundur tegundar var Ta Maria Beat The Fantasy, með meistarastig og Cacib. 2.sæti í grúppu 9!! (BOB BIG-2)
Besti hundur tegundar 2, var Santosha Angel Dust, með meistarastig og Cacib

Besti hvolpur tegundar 6-9 mán. var Perluskins Endlessly Devoted.
Besti hvolpur tegundar 2, 6-9 mán var Perluskins Evryones Fantasy

Besti Hvolpur tegundar 4-6 mán. var Leone-Canes Primo Besti hvolpur sýningar 2! (BIS-2 puppy!)
Besti hvolpur tegundar 2, 4-6 mán var Ljósanætur AvaFrekar úrslit Hér (All the results here)
Myndir hér (photos here)


BOB, BIG-2 Mika (Ta Maria Beat The Fantasy) BOS: Mayday (Santosha Angel Dust)


BOB: Monza (Perluskins Endlessly Devoted) -- BOS: Úlli (Perluskins Evryones Fantasy)


BOB BIS-2: Leone-Canes Primo -- BOS: Ljósanætur Ava

Augnskoðunar kröfur 3.3.10

Á stjórnarfundi Hundaræktarfélags Íslands þann 10. febrúar samþykkti stjórn eftirfarandi heilbrigðiskröfur fyrir shih tzu hunda (vegna beðni frá deild?)
Augnvottorð: Vottorð má ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun.(Gildir frá 1. júní 2010).