. Á Íslensku
.

Fréttir
Um tegundina
Ættbækur
Hvolpar
Sýningar
Myndir
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


. In English
.

News
The breed
Pedigree
Litters
Shows
Photos
Misc
Links
Guestbook
E-mail

 

Myndir frá sýningunni
Hér er má sjá nokkrar skemmtilegar myndir sem teknar voru á sýningunni síðustu af Baldri R. Jóhannssyni. Sjá Myndir. Ef þið tókuð myndir á sýningunni þá um að gera að senda þær inn anja@shihtzuhundar.com. Það eru einnig komnar inn myndir á pixlar.is





Nýr Íslenskur meistari
Tíkin Tibet´s Prides Drop Dead Beautiful "Stína" er nýr íslenskur meistari. Hún er í eigu Guðrúnar Jóhannsdóttur. Hún fékk sitt 3 meistarastig á marssýningunni síðustu og sitt annað cacib.

 

Smáhundadagar í Garðheimum
Shih Tzu var með í Garðheimum um helgina 10-11 feb. og stóðu sig allir frábærlega. Þarna voru meðal annars hvolpaskottin hennar Villimey. Arven, Villimey, Birta, Valli, Stína, Lassi, Lenni, Rut og Lotta. Anton, Max og Alex, Melli og Mayday. Þannig það var nóg af Shih tzu-um sem er frábært og vöktu þeir að sjálfsögðu lukku.

Shih Tzu vinsæll
Shih tzu er í 9. sæti í Ameríku á lista yfir vinsælustu tegundirnar þar í landi. Í Bretlandi er hann í því 12. með 4,436 skráða hunda.

Connor stigahæðstur
Hinn Kanadíski Multi Ch Rapture Prelude to Ovation, öðru nafni Connor varð í fyrsta sæti sem stigahæðsti hundur ársins í Noregi 2006, sem Annika Ulltveit-Moe er að sýna í Evópu fyrir eigendur hans í Kanada. Einnig varð hann stigahæðsti Shih Tzuinn í Danmörku og í Svíþjóð (ásamt multi ch F
ossella Kama Sutra). Sá stigahæðsti í Finnlandi er multi Ch Tangse Robin Fantasy. (Þess má til gamans geta að Robin er hálfbróðir Max sem býr hérna á Íslandi).

..........
Connor. ...................................................Robin (Photo: Tamaria kennel)
(Photo:canadian shihtzuclub )

Shih Tzu hundar hittust!
Í dag (20.1.07) komu saman Shih Tzu hundar og eigendur þeirra. Mæting var nokkuð góð. Eigendur spjölluðu á meðan hundarnir skoðuðu hver aðra. Sjá má myndir hér.

Endilega þeir sem voru með myndavél að senda inn fleiri myndir. anja@shihtzuhundar.com

7 hvolpar
Það var fjölgun á Shih Tzu hundum í haust en það fæddust 7 hvolpar 9.ágúst. 4 tíkur og 3 hundar, 1 tíkin dó eftir 3 daga. Móðir hvolpanna er íseldar villimey og faðir isch Camelle the wicked one (melli). Ættbækur hvolpanna eru komnar inn á ættbókarsíðuna. Hvolparnir hafa allir fengið heimilli. myndir væntanlegar.

 

 



Shih Tzu tík til landsins
Shih Tzu tíkin Tibets Pride's Because I'm Worth It eða Rut eins og hún er kölluð, kom til landsins í einangrun í desember. Rut er í eigu Guðrúnar Jóhannsdóttur og kemur frá Svíþjóð. Hún er undan SUCH NUCH Ziams High Five og Tibets Pride's Kissed By A Rose. Sjá ættbók hér. Til hamingju með hana!

 

 

 

Shih Tzu í hundafimi
Meistaramót HRFÍ var haldið 25 nóvember sl. í Andvarareiðhöllinni. 30 hundar voru skráðir til leiks í sex flokkum. Unglingadeildin keppti þar í þremur flokkum. Það var Shih Tzu tíkin Ronja og Helga Guðjónsdóttir sem að sigruðu í unglingaflokki 9-12 ára. Glæsilegt hjá þeim og frábært að sjá Shih tzu í hundafimi! Hérna eru myndir af Helgu og Ronju í fiminni.

 



Shih Tzu á Ítalíu

Hvernig ætli Shih Tzuarnir á Ítalíu líta út? Hérna eru nokkrar myndir sem teknar voru á alþjóðlegri sýningu þar í landi um síðustu helgi, af keppni um bestu tík tegundar og af bestu hvolpum. Sjá myndir hér.

Myndir teknar af Margréti Kjartansdóttur. (10.11.06) Anja






Októbersýningin
Oktobersýning HRFÍ var haldin um helgina 7-8 október. Dómari var Ann Ingram frá Írlandi og voru 7 hundar skráðir. Besti hundur tegundar að þessu sinni var Molly með cac og cacib. Besta tík tegundar II var Ronja, með m.efni. Besti rakki var Tímon (íseldar Mi-kah) með cert og cacib. Besti rakki tegundar II var Max (Shabanoun Mulberry Max), með m.efni. Mayday (Santosha Angeldust) varð í 2 sæti í opnum flokki. Trixie fékk 2 einkunn.
Valli mætti ekki. Til hamingju allir með árangurinn.



Úrslit á sérsýningu Terrierdeildar

Þann 9 sept. stóð Terrier deildin fyrir sýningu og bauð m.a. Shih Tzu þátttöku. Dómari var Cindy Petterson frá Svíþjóð. 5 Shih Tzu hundar voru sýndir, þar af 3 rakkar og 2 tíkur. Shabanoun Mulberry Max, sem var sýndur í ungliðaflokki, fékk framhald, Íslenskt meistarastig, og varð besti hundur tegundar. Íseldar Mí-Kah sýndi í unghundaflokki, fékk 2 einkunn. Tibets Prides Way of the Dragon fékk 1. eink. og 2 sæti í opnum flokki. Fantasía hjá Íseldar sýndi í ungliðaflokki, og fékk 2 einkunn. Tibets Prides Drop Dead Beautiful, keppti í opnum flokki, og fékk 2. einkunn. Hér getið þið séð fleiri myndir. Það væri gaman að fá sendar myndir frá sýningunni ef þið tókuð.

10.9.2006




Ný tík til landsins
Komin er Shih Tzu tík úr einangrun, frá Santosha kennel í Bretlandi. En hún dvaldi í einangrun í Höfnum. Faðir er Santosha My My Oh My, móðir Santosha Blackberry. Eigandi er Soffia Kwaszenko. Til hamingju með hana Skemmtilegt hvað Shih Tzu stofninn á Íslandi er alltaf að stækka og dafna. Ættbókin hennar
15.8.2006


Max komin úr einangrun
Shabanoun Mulberry Max kom úr einangrun 1 júní sl. Er hann kátur og ánægður hundur og kom bara vel út úr einangruninni. Hann var mjög glaður að hitta aðra Shih tzua og kemur honum og hinum heimilishundunum vel saman. Sjá meira um Max á heimasíðunni hans.

6.5.2006

Heimsýning Finnlandi, úrslit
33 Shih Tzuar voru skráðir. Dómari Eija Verlander.

BHT + BTT + cacib CH Fossella Smell Of Chanel (Olsson Bodil, Tygelsjö)
Junior Winner - rakki + cc Fossella The Beat Goes On (Rinne Ulla, Espoo)
Junior Winner - tík Fossella Icing On The Cake (Lindkvist Linda, Malmö)
CACIB - besti rakki Fossella Kama Sutra (Olsson Sofi, Tygelsjö)
meistarastig (cc) - tík Kirikiño Doña Anastasia (Mendikote Juan Carlos, Bizkaia)
Besti öldungur Moffelinos Close To You (Rantamäki Seija, Vaasa)
Besti hvolpur Besamano's Loveable Lick (Ekholm Anette, Tampere)
Besti ræktunarhópur Kennel Fossella (Fossenius Bodil, Skurup)

Sérsýning Shih tzu í Finnlandi, úrslit.

 

Ný Vefsíða
Hér má sjá fínu heimasíðuna hans Sonny Bono, http://www.blog.central.is/sonnybono

31.5.2006


Vorfagnaður Shih Tzu!

Laugardaginn 7 maí var haldin vorfagnaður Shih Tzu hunda í salnum dugguvogi. Það var góð mæting og skemmtu hundar og eigendur sér vel yfir veitingum. >> Sjá myndir hér. Ef þið tókuð myndir endilega að senda þær inn.

7.5.2006

Shih Tzu til landsins!
Max litli er nýjasta viðbótin við Shih Tzu stofninn á Íslandi. Hann kemur frá Finnlandi og er frá Shabanoun ræktun. Ræktandi hans er Satu Junnola og eigandi er Anja Björg Kristinsdóttir. Hægt er að sjá ættbókina hans hér. Max er 9 mánaða gamall, og kemur heim úr einangrun í Höfnum, á nýja heimilið sitt 1 júní. og er mikil spenningur.

5.5.2006

Vís dagar!
Vís hélt dýrahátíð í Víðidalnum á Sunnudaginn. Shih Tzu var með bás og gat fólk kynnst tegundinni. Þarna voru Shih Tzuarnir Melli, Von, Legolas, Arven og Villimey. Sjá myndir

3.3.2006

 

Hundakynning
Hundakynning var í dag og verður einnig á morgun, 18-19 mars í Blómavali, Skútuvoginum frá 13-17. Shih Tzu er með bás og er hægt að koma og fá að klappa hundunum og spjalla. Þarna voru meðal annars bræðurnir Tímon, Bónó og Kalli, svo Merlín, Von og Ronja. Hægt er að sjá myndir hér.

16.3.2006

 

Fimm hvolpar fæddir
Þau Stína og Anton áttu fimm fallega og heilbrigða gull og hvíta hvolpa þann 10 mars 2006. Eina tík og fjóra rakkar, móður og hvolpum heilsast vel. Ræktandi Guðrún Jóhansdóttir, Perluskins ræktun.

16.3.2006

Úrslit sýningar
Þrír hvolpar voru sýndir í hvolpaflokki 4-6 mánaða. Besti hvolpur tegundar var Valli, eigandi Málfríður Baldvinsdóttir. Annar besti hvolpur tegndar var Trixie og annar besti tíkarhvolpur far Fantasía hjá Íseldar. Fræbært hjá litlu loðboltunum.

Besti hundur tegundar var Molly, eigandi Ingibjörg Jafets. Hún fékk sitt fyrsta íslenska meistarastig! Glæsilegt. Annar besti hundur tegundar var Íseldar Lille Big man sem fékk Cacib! flott!. 2 sæti í opnum flokki var Íseldar Mí-kah sem fékk sitt fyrsta meistarastig ( það færðist yfir á hann frá Legolas, því hann var þegar komin með 3 stig). 3 í þriðja sæti var Tibet´s Prides Way of the Dragon. Önnur besta tík í ungliðaflokki var Íseldar La Luna. Tvei hundar mættu ekki. Þannig að Shih Tzu tegundinni gekk vel að þessu sinni, allir með 1 einkunn!!

Gaman væri að fá myndir frá sýningunni, sendist á myndir@shihtzuhundar.com
5.3.200

Smáhundadagar í Garðheimum
Haldnir verða smáhundadagar núna í Garðheimum um helgina 18-19 feb, frá 12-17. Shih tzu verður eitthvað á staðnum, og verður því hægt að koma og kynna sér tegundina.

16.2.2006

Evrópusýning Courtrai í Belgíu.
Það var Shih Tzu sem kom sá og sigraði á risastórri sýningu í Belgíu. 2606 hundar voru skráðir til leiks . Alls kepptu hundar frá 40 löndum, og þá flestir frá Belgíu, Frakklandi og Hollandi. Shih Tzuinn er frá Ítalíu og heitir CH Seven Days-Of-Love Taihe Dian. Taihe er ræktaður af Damiani, faðir CH Quindon Langpur Dagwood og móðir CH Runabout Canadian Bear Marvel, eigandi og sýnandi er Fr. Farezi-Mazaolo. Myndir Aniwa.


17.12.2005

Bandaríkin: 19 Shih Tzuar í háska
Það eru ekki bara góðar fréttir sem berast utan úr heimi. Hér er ein frá Bandaríkjunum af NewsNet5. Nítján Shih Tzu hundum og hvolpum var bjargað og þeir færðir í hundabyrgi frá heimili manns að nafni Pepper Pike og bíða nú eftir framtíðarheimilum, í Cleveland.
Hundarnir voru einir 36, en flestir af þeim dóu eða þurfti að svæfa því þeir voru sýktir Parvó-vírus og illa á sig komnir.
Hundarnir vori í lélegu ásigkomulagi, fengu hvorki læknishjálp né næga fóðrun eða umhyggju. Hundarnir voru frá aldrinum 8 vikna til 5 ára og er verið að leita af heimilum fyrir þá Vestanhafs. og eru þeir þá geldir, ný snyrtir og heilbrigðisskoðaðir.
5.10.2005

Vísindavefurinn
Á Vísindavefnum má lesa skemmtilega grein um Shih tzu hundinn eftir Jón Má Halldórsson, líffræðing. Sjá hér.

,, Hundar af Shih Tzu ræktunarafbrigðinu eru komnir af peking-hundinum og tíbetsku afbrigði sem nefnist Lhasa apsoo. Shih Tzu hundar komu fyrst fram í Tíbet og eru nú meðal vinsælustu dekurhunda á Vesturlöndum.

Í Kína kallast hundar af þessu afbrigði Shih Tzu kou sem hægt er að þýða yfir á íslensku sem ljónahundur. Sennilega er þar verið að vísa til hins mikla makka þeirra en það er fátt annað við þessa litlu hunda sem minnir á ljón. Shih Tzu hundar eru aðeins um 25 cm á herðakamb og vega oftast á bilinu 4-7 kg. Þeir hafa ekki aðeins mikinn makka heldur eru feldurinn allur mjög síður. Þar sem Shih Tzu eru ræktaðir sem dekur- og heimilishundar eru þeir afar líflegir og skemmtilegir, sívirkir og traustir félagar.

Ekki er vitað um aldur þessa hundaafbrigðis en þó eru til málverk og teikningar frá 7. öld af hundum sem minna mjög á Shih Tzu hunda. Heimildir eru fyrir að Dalai Lama hafi gefið keisara Kínaveldis Shih Tzu hunda að gjöf á 16. öld. Shih Tzu hundar voru vinsæl gæludýr á tímum Ming konungsættarinnar í Kína (1368 - 1644) og hafa verið hátt skrifaðir innan kínversku hirðarinnar í gegnum aldirnar.

Kínverska keisaraynjan Cixi (Tzu-His, 1834–1908) hélt úti metnaðarfullri ræktun á Shih Tzu hundum, en eftir dauða hennar dró mjög úr ræktun þeirra og hundar hennar dreifðust um byggðir landsins. Eftir uppreisn kommúnista var ræktunarafbrigðið nær horfið.

Allir núlifandi Shih Tzu hundar eru afkomendur 14 hunda sem fluttir voru til Evrópu, bæði Englands og Noregs, á millistríðsárunum. Hundaáhugamenn í Englandi hófu að rækta afbrigðið á nýjan leik og var fyrsti Shih Tzu klúbburinn stofnaður þar í landi árið 1935. Þaðan hefur afbrigðið síðan dreifst víða um lönd og njóta þessir hundar nú mikilla vinsælda.
Hægt er að lesa meira um Shih Tzu hunda á heimasíðu Shih-Tzu hunda á Íslandi."


13.9.2005

Shih Tzu í Garðheimum
Á smáhundadögum í Garðheimum um helgina var mikið um að vera. Alex og Anton voru fulltrúar Shih Tzu fyrri part dagana. Svo voru það Máni, Merlin, Von og Sól seinni partinn, og stóðu þau sig öll með prýði. Fólk var ótrúlega hissa hvað Shih Tzu voru yfirvegaðir og blíðir og tóku þessu öllu með ró. Sjá má myndir frá Garðheimum hér.

13.9.2005

Tvær Finnskar sýningar
Vefstjóri fór á tvær sýningar í Finnlandi í sumar þar sem sýndir voru Shih Tzuar. Önnur í Vantaa, Helsinki, dómari Kirsti Louhi. Sýndir voru 9 Shih Tzu hundar. Besti hundur tegundar var tíkin Fin & S & Est & Lv Mva V01 LvV-05 Lt Ch and Baltv-05 Aylas Imperial Wish, Besti hundur tegundar 2 var unghundarakkinn EstJv-05 Mai-Tai´s Lord Of The Dragons. Seinni sýningin var haldin í Joensuun. Þar voru sýndir 8 Shih Tzuar. Besti hundur tegundar var öldungurinn Kans & Fin & S & Est Mva V-03 Le Bon Beat´em All. Besti hundur tegundar 2 var unghundstíkin Aylas Josephina Baker. Fleiri myndir frá þessum sýningum koma innan skamms.


CH Aylas Imperial Wish .........CH Aylas Imperial Wish og Il Pericolos Dragon Lady.



12.8.2005

Frodo
Þessi sæti strákur heitir Frodo og býr á Selfossi. Hann er hálfur Shih Tzu ef svo má segja, því að pabbi hans er Shih Tzu og mamma hans er strýhærður Langhundur/Cairn Terrier. Svona getur gerst þegar ástin stýrir ferðinni hjá hundunum ;) Frodo er strýhærður eins og mamman og er því reyttur, en hann hefur líka fengið karakter einkenni frá Shih Tzu hjá pabbanum þ.á.m. skúffu ;) Eigandi Frodo er Elsa og á hún einnig mömmuna, en pabbinn er Klettur. Það fæddust fleiri hvolpar í gotinu, sem höfuð ekki strýhært hárafar.

26.5.2005

Stal bíl og óvart Shih Tzu hundi.
Maður og hundur sameinuðust á ný í Bandaríkjunum sl. Þriðjudag, þremur dögum eftir að bíl mannsins var stolið ásamt 6 ára gamla Shih Tzu hundinum hans Brandy, sem var í bílnum.
Norman Melnick, er 74 ára að aldri. Hann var að versla þegar að bílnum hans sem er að gerðinni Lexus var stolið þar sem hann lagði honum í bílastæði fyrir utan verslunina.
,,Mér er í rauninni alveg sama um bílinn minn,” greindi hann frá í blöðum þar vestra, ,,ég vil bara fá Brandy mína aftur!”
Norman segist vera glataður án Shih Tzu hundsins síns, sem hann fékk í afmælisgjöf fyrir 6 árum síðan.

,,Hún er besti félagi minn 24 tíma sólahringsins 7 daga vikunnar,” sagði hann. ,,Ég þoli ekki að skilja hana eftir eina, þannig að ég tek hana með mér hvert sem ég fer, eins og ég gerði daginn sem bílinn var stolinn.”

,,Ég hef setið og íhuga og vonað að einhver segi, ,,Ég fann hundinn þinn."'

Á þriðjudaginn sl. rættist óskin. Haft var samband við Norman, það var hjúkrunarkona sem vinnur á sjúkrahúsinu í Newark. Hún sagðist hafa séð hundinn rölta einan um göturnar fyrir utan sjúkrahúsið og tók hún hann inn. Norman fór beina leið á sjúkrahúsið þegar konan hringdi í hann og sagðist hafa fundið hundinn.

Það var gleðistund þegar þau hittust á ný, bílinn er en ófundinn.

15.5.2005

Shih Tzu á Vís dögum
Kynntir voru Shih Tzu hundar á dýrahátíð Vís 2005. Það voru allt í allt um 30 tegundir. Básinn okkar var hinn glæsilegasti og heppnaðist þetta vel allt saman. Að vísu fengum við að vita þetta með svo stuttum fyrirvara að ekki var hægt að skipuleggja betur, en allt tókst með prýði samt sem áður. Alex, Von og Merlin stóðu sig rosa vel í básnum. Fleyri myndir í galleríinu.

21.4.2005