. Á Íslensku
.

Fréttir
Um tegundina
Ættbækur
Hvolpar
Sýningar
Myndir
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


. In English
.

News
The breed
Pedigree
Litters
Shows
Photos
Misc
Links
Guestbook
E-mail

 

Harry, hundurinn hennar Geri Halliwell
Breska söngkonan Geri Halliwell fyrrum meðlimur hljómsveitarinnar Spice Girsl, sem var og hét, á lítinn hund sem heitir Harry. Harry er Shih Tzu hundur sem hún bjargaði úr dýraathvarfi í Bretlandi, en hann var heimilislaus og hún tók hann að sér. Þau eru óaðskiljanleg og hafa birtst í ófáum blaðaviðtölum og sjónvarpsþáttum saman. Þau eru í raun alltaf saman og hafa náðst ófáar myndir af þeim að versla, á tóneilkum, á veitingastöðum, á röltinu o.s.frv. Geri ásamt Harry voru á forsíðu tímaritsins ,,New Woman." Í viðtali við blaðið segir Geri m.a. að Harry hafi bjargað lífi sínu. Í Tussaud´s vaxmyndasafninu í London, er vaxmynd af Geri og að sjálfsögðu líka Harry. Geri var mjög ánægð þegar að það varð gerð vaxmynd af hundinum líka, eins og hún hafði óskað.

Geri hefur nú ákveðið að leika í hundamats auglýsingu. Já það eru ekki allir hundar sem njóta þeirra forréttinda að fara allt með eigandanum, þá er átt við bókstaflega allt. Sá litli fer með henni þegar hún fer í hárgreiðslu og snyrtingu, í viðtöl, góðgerðarsamkomur, í líkamsræktina, hann situr líka stundum hjá henni í körfu þegar hún hjólar um stræti Lundúna. Harry á heimasíðu og er slóðin www.geocities.com/some_sinner.
22 .1.2004

Shih Tzu bjarganir
Á netinu eru nokkuð margar svokallaðar hundabjarganir, þar sem að gott fólk tekur að sér hjálparvana hunda t.d. úr hvolpaframleiðslum, hunda sem fólk hefur hreinlega losað sig við og hunda sem hafa sætt ofbeldi. Til eru nokkkuð margar bjarganir sérstaklega gerðar fyrir Shih Tzu. Fólk getur líka styrkt hundana í gegnum netið því margir þeirra þurfa að fara í dýrar aðgerðir. Það er ótrúlegt að lesa þessar sögur, um hvað þessi kríli eru dugleg og það sé til gott fólk sem vill hjálpa þeim. Hér fylgir ein saga.

Cherie

Cherie kom frá hvolpaframleiðslu í Norður Texas, sem betur fer var lokað. Hún vóg alltof lítið þegar komið var með hana í björgunina, og var þá 8 ára gömul. Aumingja litla dýrið þjáðist af tveimur alvarlegum sjúkdómum og lét næmstum því lífið. Cherie þurfti tvær blóðgjafir og lyf til þess að hún gæti lifað.
Í dag er Cherie allt önnur, þið getið séð muninn á henni á myndunum hér fyrir neðan. Hún býr nú í góðu yfirlæti hjá nýjum eigendum, er dekruð lítil prinsessa, glæsileg og hefur náð sinni réttri þyngd.

8 .1.2004


Cherie
þegar hún kom...........................Cherie í dag.


Íseldar Dags-Birta
Ég heiti Lilja Sveins og ég ásamt Þórði og Thelmu eigum Íseldar Dags-birtu hún er 2 ára gömul síðan 5 júlí 2003
. Dags-birta er orðin Íslenskur meistari og er búinn að fá tvö alþjóðleg meistarastig. Sjö mánaða var hún líka valin besti hvolpur sýningar. Sjá skemmtilegar myndir af Birtu og fjölskyldu hér > 25.10.2003

Úrslit sýningarinnar.
7 Shih Tzu hundar trítluðu um gólf reiðhallarinnar á meistarasýningu HRFÍ um helgina, þar af einn hvolpur. Íseldar Villimey varð besti hvolpur tegundar, fékk heiðursverlun og keppti um besta hvolp sýningar. Hún komst í undanúrslit og varð 3 besti hvolpur sýningar. Allir Shih Tzu hundarnir sem sýndu á sunnudaginn fengu 1 einkunn, sem er frábært. Besti hundur tegundar varð INTUCH ISCH Íseldar Y-as-mín, hún varð jafnframt 3 besti öldungur sýningar. Dómari var Rodi Hübenthal frá Noregi, og hvolpadómari var Bo Skalin frá Svíþjóð. Sjá myndir frá sýningunni hér >

Íseldar Villimey: Besti hvolpur tegundar, heiðursverðlaun, besti hvolpur sýningar 3.
Camelle the Wicked One:
1.einkunn, 1 sæti.
Aksu Ready for Love: 1.einkunn, 1 sæti.
Íseldar Dögun: 1.einkunn, 1 sæti, Íslensk meistarasig, BTT 3.
Eldfjalla Katla: 1.einkunn, 2 sæti.
INTUCH ISCH Íseldar Y-as-mín: BTT 1, BHT 1, BÖS 3.
ISCH Íseldar Dags-Birta: BTT 2. - 6.9.2003

Tæknilegir örðuleikar
Síðan hefur verið lokuð undanfarið vegna tæknilegra örðuleika eins og sagt er, en er komin upp aftur. Endilega verið dugleg að senda inn efni á síðuna og myndir svo það verði meira um uppfærslur.


Sabrina syngur líka
Ég heiti Stefanía Kristjánsdóttir.... Ég á Shih Tzu tíkina Ævintýra Þyrnirós er besta barn eða Sabrina Rós eins og við köllum hana, hún er að verða 4 ára, hún er æðislega góð og yndisleg og ótrúlega blíð... Hún syngur líka allveg eins og Alex... nema það að hún syngur bara við svona Nokia simahringingu, þannig að ef vekjaraklukkan i símanum er lengi á á morgnanna þá byrjar hún að syngja með henni, það er rosalega sætt og fyndið =)


Úrslit sýningarinnar

5 Shih Tzu hundar kepptu á Alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ 27 -29 Júní, þar af einn hvolpur. Camelle The Wicked One keppti í unghundaflokki. Hann fékk stig til meistara, varð besti rakki tegundar, og besti hundur tegundar, keppti svo í úrslitum í tegundarhópi 9. Tangse Spader Madame, fékk sitt þriðja Íslenska meistarastig og er þar með orðin Íslenskur meistari. ISCH Íselda Dags-Birta keppti í meistaraflokki og varð besta tík tegundar og annar besti hundur tegundar. Íseldar Villimey keppti í hvolpaflokki og varð valin 4 besti hvolpur sýningar í aldurshópnum 4-6 mánaða. Eyrún Anna Tryggvadóttir sýndi Santosha Jumping Jack Flash í ungum sýnendum og hafnaði í fyrsta sæti í yngri flokk. Dómari var Frank Kane frá Englandi. Glæsilegur árangur þetts. Sjá myndir frá sýningunni. - 3.7.03

Heimilislaus Shih Tzu á Spáni
Þar sem við erum í heimsókn á Spáni, gengum við niður Römbluna sem er stór verslunar og menningargata í Barcelona. Við eitt götuhornið sat kona med tvo hvolpa, eina gull og hvíta Shih Tzu tík og svartan og hvítan blendingshvolp, í fanginu var hún með kött. Fyrir framan þau var peningabaukur og skilti sem á stóð að þessum dýrum vantaði heimili. Vonandi fá þessi dýr gott heimili. ABK 5.6.03

Frétt
,,Britney Spears er búin að kaupa sér hvolp til að fylla upp í kærleiksskarðið sem kærastinn Justin Timberlake skildi eftir er þau hættu saman. Að sjálfsögðu var söngkonan síbrosandi ekkert að fá sér einhvern ómerkilegan blending heldur dugði ekkert minna en sjaldgæfur svartur seppi af shih-tzu kyninu." Mbl.is 19.3.2003

Íselda Dags-Birta besti hundur tegundar
Sjö Shih Tzu hundar kepptu á Alþjóðlegri sýningunni HRFÍ um helgina. Íseldar Dags-Birta varð besta tík og besti hundur tegundar og varð Íslenskur meistari og fékk Cacib. INT.UCH ISCH Íseldar Y-as-mín varð önnur besta tík tegundar. INT.UCH ISCH Santosha Jumping Jack Flash varð besti rakki tegundar og annar besti hundur tegundar og fékk Cacib. Eldfjalla Karvel Hnoðri varð annar besti rakki tegundar og fékk sitt fyrsta meistarastig.
Camelle The Wicked One, var að sýna í fyrsta sinn í hvolpaflokki, Hann varð besti hvolpur tegundar, fékk framhald og keppti um besta hvolp sýningar. Stefanía Kristjánsdóttir sýndi Shih Tzu tíkina Ævintýra Þyrnirós er Besta Barn, í eldri flokki ungra sýnenda, og varð í fyrsta sæti.

Virkjum síðuna
Kæru Shih Tzu eigendur, verum dugleg að virkja síðuna okkar og gera hana líflega og skemmtilega. Sendið inn myndir af hundunum ykkar, sögur, skrítlur eða hvað sem ykkur dettur í hug. Endilega komið líka með hugmyndir um nýtt efni. Email síðunnar er shihtzu82@hotmail.com eða shihtzu@hvuttar.net jan 2002