|
Shih
Tzu bjargar fjölskyldu sinni úr eldsvoða
Lítill
Shih-Tzu braust í gegnum brennandi bílskúr,
hann flúði til að láta eigendur sína
vita af eldinum.
Fjölskyldan
sagði að Shih-Tzu hundurinn þeirra hún
Missy, hefði bjargað lífi þeirra eftir
að eldur braust út í húsinu um 6:00
leitið einn morguninn. Charlene, sagði að bílskúrinn
sem Missy flúði í gengum hafði tvær
dyr. "Hún vann sig áfram og náði
að opna aðra, svo ýtti hún hinni hurðinni
með trýninu, svo hún opnaðist. Ég
þakka guði fyrir að hún var ekki læst."
Missy vakti svo fjölskyldu sína, gelti og krafsaði
í svefnherbergishurðina þeirra þangað
til þau vöknuðu. "Þegar ég
settist upp í rúminu, fann ég mikla reyklykt,"
sagði Charlene.
Hundurinn
Missy hefur ekki átt farsæla fortíð.
Þessi Shih Tzu hefur lent tvisvar fyrir bíl,
misst annað augað, og er með liðagigt. "Hún
hefur fengið fullt af nammi og góðum mat að
launum" - er ofdekruð allan daginn," að
sögn Charlene. Fjölskyldan missti nokkra páfagauka
í eldinum, vegna reykeitrunar, Þau hefðu
getað
Þrílitur Shih Tzu á leiðinni
til landsins!
Hann heitir Merlin eða Camelle The Wicked One. Hann kemur
til landsins 30.12.02
frá Finnlandi. Hann er þrílitur, sem er
mjög sjaldgæf litasamsetning. Hann er í
eigu Soffíu K.
Shih
Tzu á Hvuttadögum
Lítill Shih Tzu bás var á Hvuttadögum
og var Alex í honum og kom fólk og skoðaði
hann og fékk upplýsingar um tegundina. Sól
og Máni voru einnig á staðnum, og fengu
hundasnyrtarnir þau lánuð til að sýna
umhirðu á hundum. Svo tók hann Alex lagið
við undirleik munnhörpu fyrir sýningargesti.
Shih Tzu
eigendur almennt óánægðir: Röng
mynd gefin af tegundinni
Fyrr hér á síðunni var birt
frétt um það, að Shih Tzu hundur mundi
leika í vinsælu, bresku sjónvarpsþáttaröðinni
"Coronation Street". Svo varð raunin. Nema hvað,
að Shih Tzu eigendur sem fylgdust spenntir með að
sjá framistöðu hvutta, urðu fyrir miklum
vonbrigðum.
Shih
Tzu er þar lýst sem litlum glefsandi hundi sem
alltaf er í fanginu á eigendunum, líkt
og þeir væru fótalausir, að sögn
gagnrýnenda. Þessi hundur sem birtist á
skjánum er kallaður "Herra Woo." "Hann
er nánast bara sýndur í fanginu á
eiganda sínum líkt og skraut, hann borðar
aldrei, drekkur aldrei, fær aldrei göngutúra,
nér er bustaður." Þetta finnst Shih
Tzu eigendum, sem fylgjast með þáttunum,
gefa ranga mynd af tegundinni. "Mikil eftirspurn hefur
verið eftir Shih Tzu að undanförnu í kjölfar
þáttanna, og ég vona að ræktendur
vandi valið á hvolpakaupendunum" sagði
einn Shih Tzu eigandinn og gagrýnandi þáttanna.
Shih Tzu
í Agility
"Hairy, heitir Shih Tzu hundurinn sem er að
slá í gegn í hundafimi, eða öðru
nafni Agility. "Hann nýtur augljóslega
hverrar mínútu í fiminni, og það
er falleg sjón að horfa á hann, fljúgandi
á eyrunum, hoppandi í gegnum brautina."
Að söfn eiganda hans, Albertu.
Myndin hér
fyrir neðan, sýnir okkur ósköp skýrt,
að það er alveg hægt að gera eitthvað
eins og að fara í hundafimi með tegundum eins
og Shih Tzu, og þeir geta gert það mjög
vel. Þetta heldur hundinum í góðu
formi líkamlega sem og örvar heilann, hvort sem
þú keppir í þessu með hundinn,
eins og gert er með Hairy, eða bara sem skemmtun,
leikinn af fingrum fram í garðinum heima.
"Til að
minna þig á, vegna þess að Shih Tzu
eru sjálfstæðir, gæti þeim allt
í einu dottið í hug, að gera eitthvað
sem þeim langar að gera í miðri alvöru
keppni. Manneskja sem ég þekki var næstum
beðin að yfirgefa hundafimi tímana sem hún
var í, vegna þess að Shih Tzu hundurinn hennar
truflaðist alltaf af einhverju öðru. Fordæmið
af þessu var á vegasaltinu, þar sem litla
daman fór í gegnum tækið óaðfinnanlega
tvisvar í röð, en fór að leiðast
og ákvað að breyta rútínunni.
Þriðja skiptið sem hún átti að
fara á vegasaltið, lagðist hún niður
í miðjuna á vegasaltinu, beið þangað
til það skelltist niður, og renndi sér
niður það, með eina löppina dinglandi
niður. Allir hlógu og klöppuðu, þannig
að frá og með þeirri stundu, snéri
hún þessu öllu út í leik!
"Ein af ánægunum
við að búa með Shih Tzu er gleði þeirra
við að stunda hvers kyns athafnasemi. Oft er leikaraskapur
þeirra skemmtilegri en nokkuð í sjónvarpinu,
sérstaklega þegar þú gefur þeim
nýtt leikfang að leika sér með. Leikföngin
þurfa ekki að vera af dýru gerðinni heldur
- Einn Shih Tzu sem kunningi minn á, finnst mest gaman
af öllu, að leika sér með tóman
uppþvottalagar brúsa."
"Alltaf
þegar ég fer að æfa mig á hljóðfæri,
finnst mér alveg stórkostlegt þegar Shih
Tzu-inn syngur með." Segir Alberta, stoltur eigandi
Hairys."
Alberta og Hairy gera ýmislegt skemmtilegt saman. Núna
um helgina eru þau að fara í hlýðnikeppni.
Hairy vann opinn flokk í hundafimi nýlega og
óskum við honum og eigandanum til hamingju með
það, myndin af honum með rósetturnar
við hlíð sér, er að hundafimikeppninni
lokinni. (13.9.2002)
Shih Tzu á heimssýningunni í
Amsterdam
Að sjálfsögðu kepptu Shih Tzu
hundar á heimssýningunni. Sigurvegarinn að
þessu sinni var tíkin Khe-San Twice as Nice,
eigandi hennar er E. L. Sönksen. Besti rakki tegundar
var Khe-San Zim Zala Bim, og besti hvolpur Fu Xing of the
Wilacks. Mynd 1 og 2 er af tíkinni og mynd 3 er af
rakkanum og tíkinni. (14.7.2002)
Meistarasýning
HRFÍ um helgina
Fimm Shih Tzu hunda kepptu á sýningunni
að þessu sinni. Þar af tveir hundar og þrjár
tíkur.
Úrslitin eru sem hér segir:
Íseldar Dan-Dri: 2.einkunn.
Aksu Ready For Love: 2. einkunn.
Íseldar Dags-Birta: 1.einkunn, fyrsta sæti, framhald
upp í opinn flokk, meistarastig. Besta tík tegundar
og besti hundur tegundar.
Íseldar Dögun: Mætti ekki
Tangse Spiter Madame: 1. einkunn. Besta tík tegundar
nr.2.
Ævintýra Þyrnirós er Besta Barn:
1. einkunn. Besta tík tegundar nr.3.
Shih Tzu sýning, Manchu Shih Tzu félagsins
Þetta var þrítugasta og fjórða
sýningin sem Manchu Shih Tzu félagið í
Bretlandi heldur. 21.Apríl.2002, sýningin var
haldin í Birmingham.
Dómarar voru Juliet Cunliffe sem dæmdi rakkana
og Wendy Brown sem dæmdi tíkurnar.
Besti
hundur sýningar var Ch. Tameron Mr XS (Faðir: Tameron
Mr Han-Sum X Móðir: Miss Beautiful of Tameron),
sá sami og varð besti Shih Tzu hundur tegundar
á Crufts hundasýningunni. Franks' Ch. Hashanah
Hot Shot (faðir: Huxlor Trigger Happy X móðir:
Hashanah Sheer Audacity) varð besta tík tegundar.
Glenys Dolphin's Dolha's Deja Vue (Faðir: Ge-Mihs Yump
To The Moon with Darralls [Imp] X móðir: Santosha
Puttin’ On The Chic for Dolha}, varð besti hvolpur
sýningar. (26.4.2002)
Netföng
Shih Tzu eigendur! endilega sendið inn netfangið
ykkar, nafnið ykkar, og nafn/nöfn hundsins/hundanna
ykkar, svo hægt sé að bæta þeim
í Shih Tzu netfangaskránna, smellið HÉR
til að fara á skránna. (22.4.2002)
Shih Tzu
jólaballið 2001
Nokkuð fámennt en góðmennt var í
gær á Shih Tzu jólaballinu. Hundarnir
léku sér saman stilltir og prúðir
á meðan eigendurnir spjölluðu yfir kaffi
og kökum. Margar myndavélar voru á lofti
og teknar voru myndir af hundunum.
Jólaball
Shih Tzu Jólaball verður haldið Laugardaginn
29.12.2001 frá klukkan 15:00
Jólaballið verður haldið í sama
sal og síðast, að Dugguvogi 2, til húsa
þar sem hundasnyrtistofan er.
Það kostar 10.000 kr. að leigja salinn og eru
því frjáls framlög vel þegin.
Vonandi sjá sér allir fært að mæta
með Shih Tzu hundana sína. (27.12.01)
Haustsýning
á nýjum stað
Haustsýning HRFÍ verður haldin helgina 6.
og 7. október næstkomandi. Sýningin verður
ekki í reiðhöll Gusts eins og fyrirhugað
var, heldur á Ingólfshvoli, í reiðhöll
sem er milli Hveragerðis og Selfoss. Ástæðan
er einkum sú að verið er að gera miklar
endurbætur á efri hæð reiðhallarinnar
í Kópavogi og er því útilokað
að halda sýninguna þar. (17.9.01)
Barney
var stolið
Shih Tzu hundur að nafni Barney sem á heima í
Bretlandi var settur í pössun föstudaginn
13 júlí. Þegar eigendur hans ætluðu
að koma og sækja hann 17 júlí var
hann ekki þar!! honum hefði verið stolið
á fimmtudeginum 14 júlí. Leit er í
fullum gangi og eru vegleg fundarlaun veitt fyrir hundinn.
Barney er elskulegur og gæfur gull og hvítur
shih Tzu hundur. Vonandi finnst hann. (5.ágúst.01)
Hundasýning HRFÍ helgina 30 júní
og 1 júlí, 2001
Sýndir voru fimm Shih Tzu hundar á sýningu
HRFÍ og besti hundur tegundar var Tangse Spider Madame
hún vann einnig tegundarhóp 9 og keppti um besta
hund Sýningar. Hún fékk sitt fyrsta meistarastig
Besti rakki tegundar
var ISCH Ævintýra barnið í Ólátagarði.
Frábær árangur
Íseldar Mán-a-gull (Lee-jon) og Tangse
Spader Madame (Baby doll) stóðu sig frábærlega
á hundasýningunni helgina 3-4 mars.
Íseldar
mán-a-gull varð besti hundur tegundar, Íslenskur
meistari og fékk sitt fyrsta Cacib og ekki nó
með það, hann vann grúbbu/tegundarhóp
9 og varð í öðru sæti í besta
hund sýningar. Til hamingju með þennan frábæra
árangur!
Tangse Spader Madame
varð besti hvolpur tegundar og hvorki meira né
minna besti hvolpur sýningar. Frábært
hjá henni, til hamingju.
Einnig
stóð Sara María Jóhannsdóttir
sig frábærlega í ungum sýnendum.
Hún lenti í þriðja sæti með
Shih Tzu hundinn INT.UCH.ISCH Santosha Jumping jack flash
(Máni)
Einlit
svört tík komin til landsins...
Svarta tíkin þeirra Emilíu og Hafdísar
er komin í Hrísey, en er þetta fyrsti
einliti svarti
Shih-Tzu hundurinn á Íslandi og verður spennandi
að fylgjast með henni í framtíðinni
einu.
Best in Show
Það var verið að frumsýna mynd í
bandaríkjunum sem heitir Best In Show, og mun hún
koma til Ísland á næstu mánuðum.
Myndin
er um Hundasýningu og undirbúninginn fyrir hana,
fólkið sem sýnir hundana og auðvitað
hundana sjálfa. Og til gamans má geta að
einn aðalleikarinn er Shih Tzu hundur. Nánari upplýsingar
um myndina er á www.bestinshowonline.com
|