. Á Íslensku
.

Fréttir
Um tegundina
Ættbækur
Hvolpar
Sýningar
Myndir
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


. In English
.

News
The breed
Pedigree
Litters
Shows
Photos
Misc
Links
Guestbook
E-mail

 

Myndir
Jæja Shih Tzu eigendur. Fyrst við eigum svona nýtt og fínt myndagallerý [http://shihtzuhundar.com/gallery/Tzus] væri frábært að fá sendar myndir af hundunum ykkar í það. Þið getið sent póst á Önju vefstjóra og fengið lykilorð og upplýsingar svo þið getið sett inn myndir sjálf, eða bara sent myndir beint á mig á anja@shihtzuhundar.com og ég set þær inn fyrir ykkur. Allar myndir eru skemmtilegar s.s. úti í garði, á sýningu, heima að kúra... eða hvað sem er, það er svo gaman að skoða myndir af þessum dúllum.

Einnig ef þið eruð með hugmyndir eða athugasemndir hikið ekki við að hafa samband.

Chelsea Shih Tzu
,,A DOG'S LIFE: A DOGAMENTARY," Er ný mynd sem verður frumsýnd 15. mars nk. Í Bandaríkjunum og er þetta gamansöm og átakanleg kvikmynd um hundalíf í New York borg. Þar er rannsakað jákvæð áhrif á hinum sterku böndum sem myndast á milli hunds og eiganda. Sagan er sögð gegnum augun á Shih Tzu tíkinni Chelseu sem er í raun hundur leikstjóra myndarinnar. Myndin byggist m.a. á hlutverki Chelsea í lífi eiganda síns, og hvernig það verður þegar tíkin vinnur sem meðferðarhundur eftir 9/11. Hundur gefur huggun og vináttu til manna í neyð. Leikstjóri Gayle Kirschenbaum. Sjá heimasíðu myndarinnar: www.dogamentary.com

14.1.2005

Bulletin
Tímarit Sænska Specialklubben fyrir Shih Tzu kom út fyrir jólin. Þar voru að finna m.a. jólakveðjur frá sænskum ræktendum, úrslit, og birtist þar skemmtileg grein um Shih Tzu hvolpa fædda árið 2004.

Það fæddust alls 328. Shih-Tzu hvolpar í Svíþjóð þetta árið. Litaskipting á þeim er neðangreind.

Gull og hvítir: 165.
Svartur og hvítur: 68
Hvítur og svartur: 5
Einlitur gull: 22
Einlitur svartur: 8
Einlitur gull m/ svarta grímu: 16
Hvítur og gull: 4
Brúnn og hvítur: 4
Einlitur brúnn: 3
Brúnn/hvítur/svartur: 3
Þrílitur: 3
Hvítur/svartur/brúnn: 2
Hvítur og rauður: 3
TrefÄrgad: 3
Silfur: 3
Bröndóttur: 2
Rauður og hvítur: 2
Einlitur?: 1

Rauðbrúnn: 1
Hvítur og brúnn: 1
Sobel: 1
Bröndóttur og hvítur: 1
Hvítur/grár/svartur: 1
Rauður og gull: 1
Svartur og brúnn: 1

30.12.2004

Shih Tzu og Lhasa Apso námskeið

Bjargaði bóndanum
Eldra fólk í Charlottetown í USA eiga litla Shih Tzu hundinum sínum að þakka líf bóndans. Barb Simpson sagði að tveggja ára gamal Shih Tzu tíkin þeirra Shania hafi vakið hana klukkan 4 að nóttu. Litli hundurinn sem að sefur á púða á milli hjónanna var órólegur á laugardagsnóttina og vakti Barb með væli og óróleika.

Barb reyndi að sussa á tíkina en allt kom fyrir ekki. Hún kveikti loks ljósið og reyndi að vekja manninn sinn hann Róbert. Hann lá þá rænulaus í rúminu.

Barb hringdi í neiðarlínuna og komu sjúkraliðar stuttu seinan og sóttu 67 ára gamla manninn hennar. Hann e nú á spítalanum og er að ná sér, en læknarnir segja að það sem hrjáði hann var með blóðtappi.

Barb Simpson telur manninn sinn aðeins á lífi vegna Shih Tzu tíkarinnar. ,,Aðeins vegna hennar komst þetta upp í tæka tíð. Ég held að guð hafi sent okkur þennan litla engil."

Réðst á Shih Tzu
Sú fregn birtist í heimsfréttunum að Pitt Bull hundur sem hefur gengið laus í Bella Vista í Bandaríkjunum, réðst á Shih Tzu og roskinn eiganda hans þar sem þau voru á gangi. Konan slapp ómeidd en hundurinn er á batarvegi á dýraspítala. Talið er að sami hundur hafi ráðist á aðra manneskju, en hefur þetta valdið usla þar í landi.


12.10.2004

35 ára afmæli HRFÍ
35 ára afmælishátið HRFÍ var haldin Laugardaginn 4. september með kynningu á deildum og tegundum, auk keppni ungra sýnenda. Shih Tzu var kynntur í smáhundadeild og gekk vel, og gafst gestum og gangandi kostur á að skoða hundana og kynnast þeim. Alex, Sól, Von, Sabrina og Dandri voru á staðnum að kynna tegundina og stóðu sig eins og hetjur.

--> Sjá myndir frá sýningunni.

04.9.2004

Þekkt fólk og Shih Tzu hundarnir þeirra
Já það eru ótrúlegir hlutirnir sem finnast á netinu, t.d. listi yfir þekkta og frægafólkið sem á okkar tegund, Shih Tzu. Til gamans má sjá nokkur nöfn af listanum hér fyrir neðan.

Elizabeth Englandsdrottning (Hún á Shih Tzu hundinn Choo Choo)
Dalai Lama (Tíbetskur trúarleiðtogi)
Elizabeth Taylor
Bill Gates (Eigandi Microsoft)
Brooke Shields
Larry L. King
Frank Sinatra
Maurice Gibb (BeeGees)
Cloris Leachman
Jane Seymour Helene Udy (lék Dr. Quinn)
Kim Basinger (Leikona á 7 Shih Tzu hunda)
Oleg Cassini (Frægur fatahönnuður)
Robert A.F. Thurman (Farðir Uma Thurman og forstjóri " Tibet House")
Greg Maddox (Atvinnumaður í A
m. fótbolta á 2 Shih Tzu)
Geri Halliwell (Fyrrum Spice Girls söngkona)
Vidal Sassoon (hárgreisðlumaður fræga fólksins) Hann á tvo svarta og hvíta Shih Tzu og segir: "Þeir eru einu Shih Tzuarnir með rúmfræðilega klippingu."
Jo-Carroll Dennison (Fyrrum fegurðardrottning Ameríku) á Shih Tzuinn "Tooey."
Lara Flynn Boyle (Leikona; Twin Peaks, The Practice)
Henry Fonda
Nicole Richie (Önnur aðalleikonan í þáttunum "The Simple Life 1 og 2. Hún á S-T tíkina Honey.) Sjá mynd við grein.
Anna Nicole Smith (Á Shih Tzu hundinn Puppie).
18.7.2004

Minnig
Þessi sorglega yfirlýsing
var birt á vef Hundaræktarfélgas Íslands:

,,Okkar ástkæri heiðursfélagi Emilía Sigursteinsdóttir (Milla), lést 2. júní sl. eftir erfið veikindi.

Samkvæmt ósk Millu hefur verið stofnaður minningarsjóður í hennar nafni (minningarsjóður Emilíu). Hlutverk þessa sjóðs er að koma til hjálpar heimilislausum hundum og finna þeim ný heimili.

Stofnaður hefur verið reikningur í Íslandsbanka Kirkjusandi, nr. 515-14-608600. - Við erum örugglega öll sammála um að þetta sé bæði þarft og gott framtak og hvetjum við því alla hundavini til að leggja málefninu lið."

Samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda Emilíu.
07 .6.2004

Stigahæstu öldungar 2004

Shih Tzu tíkin INTUCH ISCH Íseldar Y-as-mín er nú stigahæðsti öldungur 2004 á sýningum Hrfí, með 29 stig. Næsti hundur á eftir er með 18 stig. Staðan er eftir marssýninguna.
14.5.2004

Shih Tzu í Battersea athvarfinu
í tímaritnu "Paws", sem gefið er út af Battersea hundaahvarfinu í Bretlandi, var forsíðumynd og grein um Shih Tzu og umfjöllum um sérstakt Shih Tzu athvarf þar í landi. Hérna kemur brot úr greininni:

Hittu "konung ljónanna" - Líflega og ástúðlega Shih tzu hundinn!
,, Shih Tzu er geðþekkur lítill hundur, sem vegur um 4-8 kg, Nógu lítill til þess að passa í Gucci handtösku. En þessi tegund er mjög miklir hundar, með raunverulegar þarfir. Carly Mills, sem er yfir Battersea athvarfinu er stoltur eigandi þriggja Shih Tzu hunda. ,,Shih Tzu eru mannblendnir og fullir af karakter, en þeir eru líka þrjóskir litlir prakkarar og því kannski ekki allra auðveldustu hundarnir til að þjálfa. Eins og með alla hunda og ketti förum við varlega í að koma Shih Tzu hundum fyrir á ný heimili. Shih Tzu hafa mjög einstaklingsbundinn karakter, þannig að það er mikilvægt að hver hundur passar við rétta eigandann. Upphaflega og en í dag eru þessir hundar hafðir sem félagar og eru flestir Shih Tzuar kátir, ástúðlegir, vinalegir og traustir.

Þeir eru hlýjir og góðir, en einnig kröftugir og "kaldir" hundar. Ó, og var ég búin að nefna að þeir eru líka fullir af persónuleika? Þeir geta verið tignarlegir, hugrakkir, blíðir og vinarlegir við alla sem þeir kynnast. Frábær varðhundur, Shih Tzu líkar stöku sinnum við óminn af eigin gelti, en er yfirleitt hljóðlátur innandyra og tekur vel á móti ókunnugum, sem eru meðteknir af fjölskyldunni. Leikglaður og líflegur, þessi hundategund þarf að vera með fólki og er yfirleitt góður með öðrum gæludýrum. Shih Tzu er ekki eins manns hundur. Þegar þú hefur kynnt honum fyrir börn, sem hafa lært að umgangast hunda þá kemur þeim yfirleitt mjög vel saman.

Þetta er svo sannarlega mannblendinn asískur hundur, og þú tekur líklega eftir því að Shih Tzuinn þinn situr og fylgist með þér tímunum saman og bíður eftir að þú gefur þér tíma til að gæla við hann. Kjölturakki? Upp að vissu marki, þeim finnst svo sannarlega gott að teygja úr sér hjá þér og snorka hlóðlega. Tegundin er ekki taugatrekkt eða erfið að eðlisfari, og eignast vini víðar.

Borgar Shih Tzu
Góðar fréttir fyrir borgarbúa, Shih Tzu aðlagar sig að lífi í bæði borg sem byggð. Svo lengi sem þú leikur við þá innandyra, og ferð með þá reglulega í göngutúra þá líður þeim vel. Þeim finnst líka mörgum gott að koma sér vel fyrir upp í sófa, ef þeir meiga. En ekki láta gabbast af stærðinni. Þetta eru svo duglegir hundar sem geta líka hlaupið um með þér í sveitinni, og geta laðað sig að flestum aðstæðum, líka í hamagangnum i borginni.

Þetta, sæta útlitið og ljúfi karakterinn getur útskýrt það hvers vegna þessir hundar hafa haldið velli í meira en 2000 ár. Frá höllum í Kína til ástríkra heimila um allan heim. Shih Tzu er tilvalinn fjölskylduhundur, líka fyrir fólk með börn, ef börnin eru "hundgóð."

Á síðasta ári tók Bettersea inn 67 Shih Tzu hunda sem þurftu að komast á ný heimili."

24.4.2004

Ný ferfætt stjarnan í Simple Live!

Þættirnir Simple Live sem sýndir eru á Skjá Einum, með þeim stöllum Paris Hilton, erfingja Hilton hótelanna og Nicole Richie, hefur rækilega slegið í gegn. Ný þáttaröð sem nefnist einfaldlega Simple Live 2 er að fara í loftið og er ein aðal stjarnan Shih Tzu hundurinn Honey sem Nicole á. Paris hefur verið með Chiuahua hundinn Tinkerbell í fyrri þáttaröðinni en nú bætist við Shih Tzu skottið Honey. ,,Hundarnir ná vel saman. Í fyrstu áttu þeir í smá erjum, en svo urðu þeir bestu vinir," segir Hilton í viðtali. Einnig segjast stelpurnar aldrei rífast heldur eins og hundarnir.

16.4.2004

Smáhundasýning í Garðheimum
Smáhundadagar voru haldnir í Garðheimum í Mjódd um helgina, 20 - 21 mars. Shih Tzu tegundin var þar m.a. kynnt fyrir gestum og gangandi og komu þó nokkuð margir að skoða hundana og spurja spurninga. Einnig var kynning á fóðri, hundafatnaði og fleira.

Sjá myndir frá sýningunni >>

22.3.2004

Ísland í Bítið
Þann 15. mars sl. Var Shih Tzu tegundin kynnt í Íslandi í bítið og mættu sjö hundar og sýndu sig. Brynja Tomer kynnti svo tegundina og hundana Arven, Villimey, Alex, Legolas, Merlin, Sól og Von. Kynningin tókst vel og stóðu bæði hundar og menn sig vel.

15.3.2004

Shih Tzu á fjölskyldu- og dýrahátíð
Fjölskyldu- og dýrahátíð Vís var haldin 29 febrúar sl. í reiðhölinni í Víðidal. Þar fór fram kynning á hundum, köttum og hestum. Shih Tzu var ekki með bás, en voru 3 Shihtzu hundar á svæðinu sem fólk gat klappað og kynnst og voru þeir svo kynntir í höllinni í hátalarakerfi. Von, Máni og Alex voru á staðnum og stóðu sig öll eins og hetjur.

Sjá myndir frá hátíðinni >>

29.2.2004

Myndir af Lísu og Láka
Nýjar myndir eru komnar í myndasafnið af Lísu og Láka, og hvolpunum þeirra sem fæddust 1998. Lísa og Láki eru í eigu Agnesar Löve, og voru flutt inn frá Bretlandi árið 1996.

Sjá myndirnar hér >>

24.2.2004