|
Á
dómararáðstefnu fyrir Tíbetskar tegundir,
var rætt um útlit, galla og kosti tegundanna
sem að tilheyra þessum hóp þá
m.a. Shih Tzu. Sá sem hélt fyrirlesturinn var
Paul Standon, ásamt Kenneth Edh og Anniku Klang.
HÉR má lesa skýrsluna, reyndar á sænsku,
sem gerð var og hvet ég alla ræktendur og
áhugafólk um tegundina að lesa þetta
og kynna sér hvað þykir miður fara í
tegundinni í dag, hvaða galla þarf að
varast í ræktun og hvað þarf að
draga fram.
Hér
eru nokkur þýdd atriði, sem komu fram á
ráðstefnunni
Það sem dómarar þurfa að
hugsa um með hund inn í dómhring:
- Kanna
með höndunum hvað er í raun undir feldinum.
- Vera
vakandi yfir smáum augum, ónægum bringum,
ótegundartýpískum hreyfingum og
ónægum bakvinklum
- að
axlir séu vel lagðar aftur
- Hjá
svörtum/dökkum hundum verður að þreyfa
vel og skoða andlitið til þess að sjá
vel smáatriði sem sjást auðveldar
hjá ljósum hundum með berum augum
- Skrifa
það í umsögnina hjá hundum
sem hafa færri en sex tennur milli vígtanna
í
neðri kjálka.
- Athugið
ef hundurinn sé sýndur "hengdur upp"
í taumnum
- Vera
vakandi yfir ef hundar sýna enga afturfótaspyrnu
inn i hring
Hvað
er líkt og ólíkt með Lhasa Apso og
Shih Tzu
- Hæð
er svipuð hjá báðum tegundum
- Shih
Tzu er búklengri en Lhasa Apso
- Höfuðuði
á Shih Tzu á að vera hringlaga frá
öllum hliðum, séð ofan frá. En
höfuð Lhasa Apso
er örlítið hvelft.
- Shih
Tzu hefur brattara og hærra stop (ennisbrún)
- Shih
tzu hefur hringlaga augu, Lhasa apso hefur meira möndlulaga.
- Bitið
er svipað í báðum tegundum
- Shih
Tzu hefur dýpri og breiðari brjóstkassa
- Líkami
Shih Tzu er dýpri, og nær vel niður fyrir
olnboga
- hvelfdur
búkur og örlítið flatur að neðan.
- Shih
Tzu er með hærra sett og borið skott (teapot
handle)
- Shih
Tzu hefur breiðari bakhluta en Lhasa Apso
- Feldur
er næstum sá sami hjá báðum
tegundum
- Báðar
tegundir skulu hafa langar og góðar fram og aftur
hreyfingar. Shih Tu hefur baksparkið svo allir þófinn
sjáist, sem Lhasa hefur ekki.
- Shih
Tzu er glaðlegri í framkomu og auðvaldari
að ná sambandi við
- Shih
Tzu má vera lifur litaður ólíkt
lhasa Apso
Gallar
í tegundinni Shih Tzu
- Axlir
og frontur
- Of
lítil augu
- Of
lítill (ekki nógu breiður) undirkjálki
- Ónægir
afturvinklar
- Léleg
baklína (ekki bein, heldur há að aftan
eða ójöfn)
- Of
margir hafa ekki rétta afturfóta sparkið
í hreyfingum
- Hundar
of stuttir í baki
- Í
tegundinni er of mikið um flöt og of lág
skott
| Innsendar
myndir - Myndir frá Svenska winner í Malmö 2.4.09 |
Hér má sjá myndir sem teknar voru á alþjóðlegu
Swedish winner sýningunni í Malmö, sem
keppt var um titillinn SW-09. Anja Björg Kristinsdóttir
skellti sér á sýningunna, í för
með sænsku Shih Tzu fólki og var mjög
gaman, en 75 hundar tóku þátt, dómarinn
var frá Írlandi.
| Síðan
er 10 ára!! 14 .3.09 |
Shih Tzu
síðan okkar er orðin 10 ára gömul!
Það er merkilegt hve tímanum líður
hratt! Á síðunni hefur verið birt sýningarúrslit,
hvolpafréttir, ýmis fróðleikur sem
og gagnagrunnur yfir allar ættbækur Shih Tzua
á landinu, myndasafn svo eitthvað sé nefnt
og er alltaf passað upp á að hún skuli
vera óhlutdræg því að þetta
er jú síðan okkar allra og er öllum
frjálst að senda inn myndir og fréttir :-)
Höldum
áfram að senda inn efni á síðunna
til að halda henni lifandi og skemmtilegri. Senda
tölvupóst
Á alþjóðlegu sýningu hrfí
um helgina voru 25 shih tzuar skráðir. Dómari
var Frank Kane frá Bretlandi.
Frekari úrslit hverra hunda má finna Hér.
Besti hundur tegundar með CACIB var ISCH
Molly
Besti hundur tegundar 2 með sitt fyrsta meistarastig var Perluskins Tom Cruise
Besti öldungur tegundar var ISCH
Tangse Spider Madame
Besti hvolpur tegundar, yngri: Íseldar
Orka
Besti hvolpur tegundar, eldri og 3 Bhv sýningar var Danilos Prelute Promising Girl
Myndir
komnar hér! Ljósmyndari sýningar,
Allý Gísladóttir.
| Tvær
nýjar tíkur til landsins 7.1.09 |
Það
eru tvær Shih Tzu tíkur sem dvelja nú
í einangrun. Það er Spovens
Black Starlet eða Nína sem kemur frá
svíþjóð og er hún í
eigu Guðrúnar Jóhannsdóttur (Perluskins)
Nína er einlit svört að lit. Hún er
undan Sænsku
hundunum Tangse Midnight Rambler og Firedragon's
Let's Play Smart.
Svo er það Danilos
Prelude Promising Girl eða Tee Wee sem er í
eigu Elísarbetar Dottý. Hún er gull og
hvít á litin og kemur frá Noregi. Tee
Wee er undan Ameríska rakkanum Multi Ch Rapture
Prelude to Ovation og norsku tíkinni Danilos
Wee-Me Ophelia.
Nína .............................................................Tee
Wee
Kynning
er á einni hundategund í hverju blaði hundaræktarfélags
Íslands. Í þetta sinn var það
Shih Tzu sem umfjöllunin var um.
Dómarinn
nefndi loksins tegundina okkar í viðtali eftir
sýningunna, og hafði hún þetta að
segja:
,,Tilfinningar Önnuliisu til Shih Tzu voru nokkuð
blendnar. Hún sagðist þó hafa verið
mjög hrifin af svörtum og hvítum hundshvolpi
sem hafði allt til að bera sem góður Shih
Tzu. Fallegt höfuð, lágfættur, með
fallegar hreyfingar og framúrskarandi feldgerð.
Besti
hundur tegundar var af mjög líkri tegundargerð
og besti hvolpurinn, og kvaðst hún mjög ánægð
að heyra eftir sýninguna að foreldrar hans
væru báðir frá Finnlandi.
Hún sá einnig Shih Tzu sem hún kallaði
af Amerískri tegundagerð, háfættari,
en oft vantar slíka hunda meiri líkama og fyllingu.
Þessir hundar geta verið áberandi, en það
sagði Annaliisa að Shih Tzu ætti ekki að
vera heldur væri þetta lítill, lágfættur
og sterkur hundur."
| Shih
Tzu jólaball 07.12.08 |
Shih Tzu
jólaball var haldið í dag, og komu saman
Shih Tzuar og eigendur þeirra. Taldir voru um 26 hundar
saman komnir.
Að sjálfsögðu voru teknar myndir sem sjá
má HÉR.
Nokkrir
Íslendingar skelltu sér á Shih Tzu sýningu
í Birmingham á dögunum. Hér má sjá nokkrar myndir úr ferðinni
teknar af Allý.
| Alþjóðleg
haustsýning HRFÍ 2008 |
Alþjóðleg hundasýning HRFÍ
var haldin 27-28 september með pompi og prakt. Shih Tzu
var sýndur á sunnudegi og voru hvorki meira
né minna en 20 hundar skráðir sem er metþáttaka
hjá tegundinni. Einnig var Shih Tzu deildinn með
bás þar sem að tegundin var kynnt og höfðu
margir orð af því hve blíðir og
góðir hundar þetta eru, og eiga hundar og
eigendur þeirra sem voru í básnum hrós
skilið.
Besti hundur tegundar með sitt 3 Cacib var ISCH
Shabanoun Mulberry Max
Besta tík tegundar með þriðja meistarastig
og Cacib var Molly (Varð meistari í dag)
Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða var Ta
Maria Beat The Fantasy
Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða var Gullroða
Gratton (varð einnig besti yngri hvolpur
sýningar sunnudagsins)
Rakkinn sem vann meistarastigið var Perluskins
Because I´m A King
Frekari úrslit hér Dómari var Annaliiisa Heikkinen frá Finnlandi.
Myndir frá sýningunni má finna HÉR
Video frá sýningunni tekið af Kolbrúnu
Eddu, Þetta er allir Shih Tzuarnir sem sýndir
voru í heild sinni! Mjög skemmtilegt
Á Youtube hér fyrir þá sem hafa
áhuga: Partur
1 - Partur
2 - Partur
3 - Partur
4 - Partur
5 - Partur
6
| Smáhundakynning
í Garðheimum |
Smáhundakynnig
var haldin í Garðheimum helgina 13-14 september,
og voru Shih Tzu hundar meðal annars kynntir, auk annara
smáhundategunda innan HRFÍ. Gekk helgin vel
og voru hundarnir til sóma og góð fyrirmynd
fyrir tegundina! Ef einhver tók myndir, væri
gaman að fá þær sendar til að birta
á síðunni. anja@shihtzuhundar.com
Snyrtikvöld
var haldið og tókst bara vel til þann
1.sept. sl heima hjá Ingibjörgu á Álftanesinu,
þar sem að Shih Tzu eigendur hittust og miðluðu
reynslu sinni. Anja Björg Kristinsdóttir, hundasnyrtir
baðaði og blés Shih Tzu strákinn Cruz
og fór í gegnum hvernig er best að hirða
hundana.
Cruz
fékk sér fegurðarblund eftir snyrtinguna.
| Nýr
Shih tzu til landsins |
Hann heitir
Mika eða Ta Maria Beat
The Fantasy í ættbók og kemur frá
Finnlandi. Hann er í eigu Önju
Bjargar Kristinsdóttur og er 5 mánaða
gamall, svartur og hvítur á litinn.
Dvelur Mika nú í einangrun í Hrísey
og bíður eftir að komast á nýja
heimilið sitt, og hitta nýju Shih Tzu bræður
sína Max og Anton.
| Hundasnyrtir
á Suðurnesjum |
Kata Pólska
stelpan sem var að vinna hjá Möggu hún
er farinn að taka einn og einn hund heim til sín
í snyrtingu . Kata er ófrísk þannig
að hún getur ekki ráðið sig í
vinnu eins og er, þess vegna ákvað hún
að græja sig upp og gera þetta bara heima
, þið sem eruð hér á suðurnesjunum
endilega að bjalla í hana hún býr
í Garðinum og hér er síminn hennar
857-7359 .
| Nýr
Shih tzu til landsins |
5 hvolpar
fæddust hjá Gullroða ræktun, Ingibjargar
Jafetsdóttur. Undan Molly
og Aksu Ready For Love.
Þeir eru fæddir 26 maí 2008
Það komu í heiminn 2 tíkur og 3 rakkar
í litunum svartur og hvítur, og svo gull og
hvítur. Þeir hafa allir fengið heimili.
Fleiri
myndir af hvolpunum hér
23.7.08
Shih Tzu
tík frá Íslandi Perluskins
Because I´m A Princess undan Stínu og
Max, sem býr í Svíþjóð
var sýnd á sérsýningu fyrir Shih
Tzu þar í landi og var Junior class winner með
CK (meistaraefni). 10 mánaða gömul. Skemmtileg
frétt þetta!
| 5
Shih Tzu hvolpar fæddir |
5 hvolpar
fæddust í síðasta mánuði
hjá Gullroða ræktun, Ingibjargar Jafetsdóttur.
Undan Molly og Aksu
Ready For Love.
Nú komu í heiminn 2 tíkur og 3 rakkar
í litunum svartur og hvítur, og svo gull og
hvítur. Tveir rakkar leita nú að framtíðar
heimilum. Myndir af hvolpunum koma inn bráðlega.
Uppls.
um hvolpana: ingagudrun@simnet.is
Sími: 691 0938 / 565 0938
Þó
nokkrir Íslendingar skelltu sér á heimsýninguna
Í Svíþjóð í byrjun Júlí.
Þar á meðal nokkrir Shih Tzu eigendur. Var
þetta frábær ferð og mikið af hundum
að skoða. Nokkrar myndir má sjá hér,
fleiri væntanlegar.
Shih
Tzu tíkin Precious sem er nú 9 ára gömul
er alveg ótrúleg. Eigendur hennar sem er fjölskylda
í Bandaríkjunum, tóku hana að sér
því að hún þurfti heimili fyrir
nokkrum árum síðan. Þau búa
í hjólhýsi og Cyndi dóttir þeirra
er fötluð í hjólastól og er
flogaveik. Precious lætur vita um 20 mínútum
áður en Cyndi fær kast, hún hleypur
i kringum hana, vælir og krafsar og sækir móðir
hennar til að láta vita. Precious fékk aldrei
sérstaka þjálfun heldur hefur hún
gert þetta frá upphafi upp á eigin spítur
og hefur reynst þeim mikil lífsbjörg.
Ákveðnar hundategundir virðast sérstaklega
vel geta greint flog áður en manneskjan fær
þau þ.á.m. Þýskur Fjárhundur,
Border Collie, Labrador og Shih Tzu!
Mercury News greindi frá

Það
er svo gaman hvað Shih tzu eigendur eru duglegir að
senda inn myndir af hundunum sínum! Cruz er nýkomin
með sitt eigið albúm sem má sjá
hér.
Minnum á að Shih Tzu eigendur eiga kost á
því að eignast myndaalbúm að kostnaðarlausu
fyrir Shih Tzu hundinn/hundana sína hér á
síðunni. sendið tölvupóst á
anja@shihtzuhundar.com
| Stofnun
Shih Tzu deildar samþykkt. |
Á
aðalfundi HRFÍ 15. maí sl. var tekin fyrir
umsókn um Shih Tzu deild. Var umsóknin leyfð
og á stofnfundur að haldast innan mánaðar.
Til hamingju með þetta Shih Tzu eigendur!
Viola-hirta's
Issey Miyake eða Issey eins og hún er kölluð
er nýjasta viðbótin við Shih Tzu stofninn
á Íslandi. Hún kemur frá Noregi
og er einlitt gull með svarta grímu. Eigandi hennar
er Aðalsteina Gísladóttir og er hún
nú í einangrun í Höfnum og bíður
eftir að komast á nýja heimilið sitt.
(13.03.2008)
| Úrslit
sýningar 1 mars 2008 |
Það
voru 16 Shih Tzu hundar skráðir á alþjóðlegu
sýninguna 1 mars 2008. Dómari var Arne Foss
frá Noregi.
Besti hundur tegundar var Danilos
Passion O´the Game með meistarastig. Annars
besti rakki með Cacib var ISCH
Shabanoun Mulberry Max.
Besta
tík tegundar var Gullroða
Lucia með meistarastig. Önnur besta tík
var ISCH Íseldar
Dags-Birta.
Besti
hvolpur tegundar var Perluskins
Because I´m Wise.
Myndir
frá sýningunni má sjá hér
 
| Smáhundadagar
í Garðheimum 9-10 febrúar |
Hinir
árlegu smáhundadagar voru haldnir í garðheimum
um helgina, og voru Shih tzu eigendur á staðnum
til að kynna tegundina. Tókst vel til og hundarnir
stóðu sig eins og hetjur! Hægt er að
sjá myndir hér.

Hvað er skemmtilegra en að skoða myndir af sætum
Shih Tzu hvolpum! Hvolparnir hennar Lunu og Merlin eru 4 vikna
á þessari mynd. Hægt er að sjá
fleiri í albúminu þeirra
Þann 10. janúar fæddust
5 lítil og hraust hvolpaskott. Fyrst komu 4 strákar
og svo ein stelpa í lokin og verða þeir 3
vikna næsta fimmtudag, braggast öll mjög vel:)
Foreldrar eru Íseldar
La Luna og ISCH Camella
The wiched One.
Besti
hundur tegundar var Santosha
Angel Dust "Mayday". Annar besti hundur tegundar
var Perluskins All In My Dream
"Lassi". Besti hvolpur tegundar í yngri flokk
var Perluskins Because Im
a King "Brúnó". Besti hvolpur
tegundar í eldri flokk var Gullroða
Aida Dómari var Kitty Sjong frá Danmörku.
Það voru 17 Shih Tzuar sem tóku þátt.
Þetta var í fyrsta skipti sem þeir eru
dæmdir með nýju sýningarreglunum.
Smelltu
hér til að sjá nokkrar myndir frá
sýningunni teknar af Gyðu Hennings
En vantar inn úrslit
nokkurra hundanna, endilega sendið þau inn!
Santosha
Angel Dust.......................Perluskins
All In My Dream......
| Shih
Tzu tík frá Íslandi flutti til Svíþjóðar |
Hún
Bettan (Perluskins Because I´m A Princess) ) er Shih
Tzu tík sem að fæddist hér á
landi 16.9.07 og flutti 3 mánaða gömul út
til Svíþjóðar til ræktanda þar
í landi. Það verður spennandi að
fylgjast með Íslandsfaranum á sýningum
í Svíþjóð
Hún er undan ISCH Tibet´s Prides Drop Dead Beautiful
of ISCH Shabanoun Mulberry Max.
| Úrslit
október sýningar 2007 |
Það
voru 10 Shih Tzu hundar sem sýndir voru á alþjóðlegu
sýningu HRFÍ. Dómari var Jouko Leviska
frá Finnlandi.
Besti hundur tegundar með sitt þriðja meistarastig
og*CACIB var Shabanoun Mulberry
Max
Besta tík og annar besti hundur tegundar var ISCH
Íseldar Dags-Birta "Birta" með sitt
3 cacib.
Besti hvolpur tegundar var Gullroða Lucia "Suri"
hún varð einnig í 4 sæti yfir besta
hvolp sýningar yngriflokks
Nánari úrslit
Myndir
frá sýningunni hér
| Úrslit
sýningar 23 júní 2007 |
9
Shih Tzu hundar sýndu sig í reiðhöllinni
í víðidal á sumarsýningu HRFÍ.
Dómari var Fernando M. Rodrigues, frá Portúgal.
Besti hundur tegundar með sitt annað meistarastig
var Shabanoun Mulberry Max
(Max).
Annar besti hundur tegundar með sitt fyrsta meistarastig
var tíkin Fantasía
hjá Íseldar (Ronja).
Annar besti rakki var Tibets
Prides way of the Dragon (Anton), sá þriðji
var Heikir (Bangsi).
Fleiri myndir hér
|