. Á Íslensku
.

Fréttir
Um tegundina
Ættbækur
Hvolpar
Sýningar
Myndir
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


. In English
.

News
The breed
Pedigree
Litters
Shows
Photos
Misc
Links
Guestbook
E-mail

 

2009 var met ár í fjölgun Shih tzu á Íslandi !11.1.10

Hvorki meira né minna en 24 hvolpar fæddust á síðasta ári 2009. Þarf af 10 tíkur og 14 rakkar hjá fjórum mismunandi ræktendum.

Rut og Anton áttu 6 hvolpa hjá Perluskins ræktun
Lotta og Mika áttu 5 hvolpa hjá Perluskins ræktun
Von og Merlin áttu 3 hvolpa hjá Íseldar ræktun
Aida og Eskill áttu 6 hvolpa hjá Ljósanætur ræktun
Issey og Mika áttu 4 hvolpa hjá Leone-Canes ræktun


Einnig var fluttur inn rakki og tík frá Spovens í Svíþjóð af Guðrúnu Jóhannsdóttur. og Tík af Jónínu Guðný Elísabetardóttur. Tveir hundar þau Suri og Hermann fengu íslenska meistaranafnbót !




Að gefnu tilefni 25.11.09

Að gefnu tilefni langar mig að birta neðagreint vottorð hér um hundinn Max, fyrst að það virðist vera e-h miskilingur og sögur í gangi. Nánari upplýsingar má svo fá hjá mér varðandi málið og almennt um mína hunda. Kv.
Anja
- Sjá vottorð

Úrslit sýningar 4.10.09

Alþjóðleg sýning HRFÍ var 4 október 2009. Dómari var Birte Scheel frá Danmörku. 15 Shih Tzu hundar kepptu til leiks að þessu sinni.

Tveir nýjir Íslenskir meistarar litu dagsins ljós á þessari sýningu en það var Gullroða Lucia Suri sem varð besti hundur tegundar og fékk sitt síðasta Íslenska meistarastig auk CACIB. Annar besti hundur tegundar var Danilos Passion O´The Game sem fékk einnig sitt síðasta stig til íslensks meistara og sitt annað CACIB. Til hamingju með Suri og Hermann!


Hægt er að sjá öll frekari úrslit HÉR og myndir frá sýningunni HÉR

Nokkrir góðir punktar 18.9.09

Undir hvolpar eru komin inn nýr liður Nokkrir góðir punktar, fyrir nýja hvolpaeigendur sem og alla shih tzu eigendur almennt sem gott er að rifja upp og hafa í huga.


Afmælishátíð HRFÍ 27.8.09

Glæsileg afmælishátíð HRFÍ var haldin í Víðidalnum í gær, þar voru m.a. kynntar hundategundir og var Shih tzu deildin með bás. Tegundin vakti að sjálfsögðu lukku fyrir skemmtilegt skap og fallegt útlit. Hér má sjá nokkrar myndir frá hátíðinni.

Afmælissýning HRFÍ 23.8.09

Á afmælissýningu HRFÍ voru 12 hundar skráðir til leiks báða dagana. Þetta var tvöföld sýning og því skilyrðin aðeins önnur en vanalega enda 10 hringir inn í hölinni í stað 5.
Engu að síður gekk sýningin ágætlega fyrir sig og hér fyrir neðan koma úrslitin. Kari, finnski dómarinn var ansi strangur og voru ekki margir sem fengu Excellent og hvað þá meistaraefni hjá honum. Myndir má finna hér. Sjá nánari úrslit

Laugardagur, Dómari Helle Dan frá Danmörku:
BOB + CC: Danilos Passion O´the Game
BR-2 + CK: Ta Maria Beat The Fantasy

BOS + CC: Santosha Angel Dust
BT-2 + CK: Isch Molly
BT-3+ CK: Íseldar Eir

Sunnudagur, Dómari Kari Järvinen frá Finnlandi
BOB: ISCH Molly
BT-2 + CC: Íseldar Eir
BT-3 + CK: Íseldar Orka

BOS: Engin rakki í úrslitum

ISCH Molly og Danilos Passion O´the Game

Sámur 21.8.09

Þá er Sámur kominn út og glæsilegur að vanda. Það er viðtal við dómarana eftir sýninguna og nefndi Guy Jeavons tegundina okkar. Hann sagðist mjög ánægður með þá bestu hunda þeirra tegunda sem hann dæmdi. Hann Sagði að Shih Tzu hundarnir hefðu verið af ólíkum tegundagerðum og af misjöfnum gæðum.

Sumarsýning HRFÍ 29.6.09

16 Shih Tzu hundar tóku þátt á sumarsýningu HRFÍ 28 júní sl. Dómari var Guy Jeavons frá Kanada.

Besti hundur tegundar með meistarastig var Ta Maria Beat The Fantasy "Mika"
Besti hundur tegundar 2 með meistarastig var Danilos Prelude Promising Girl (Tee-Wee)

Frekari úrslit
Sjá myndir frá sýningunni

Sámur 26.5.09

Frank Kane nefndi tegundina okkar örlítið í Sámi. Hann sagði að Shih Tzuinn sem vann hafi verið af góðri tegundagerð og ætti framtíðina fyrir sér!

Hreyfingar í Shih Tzu 24.5.09

Hér er áhugaverð grein sem birtist í blaðinu Oriental Express & Dogs in Canada eftir Jane E. Couch Shih Tzu ræktanda og dómara.

It seems to me that as I watch at dog shows of late, something is happening to the movement of our beautiful Shih Tzu. One only has to view old tapes of the breed to see the difference... Lesa Meira