|
Hreyfing
Shih Tzu er fjörugur hundur. Hann ætti að fá
reglulegar gönguferðir og að hafa aðgang
að garði. Gönguferðir um hverfið er fullnægjandi,
og hundurinn þinn verður alveg fullkomlega ánægður
með lífið, svo lengi sem þú ert
nálægt honum.
En Shih Tzu nýtur algjörlega góðs göngutúrar,
og er alveg hæfur í að halda uppi við
flestar tegundir! Reyndar voru það tveir sem fóru
í ferð til Yorkshire í Englandi, og klifruðu,
syntu og hlupu, og héldu alltaf upp við félaga
þeirra - Þýskan fjárhund og Bull
Terrier.
Heilbrigði
Shih Tzu er almennt mjög heilbrigð tegund. Það
hafa engir arfgengir sjúkdómar verið að
ganga hér á landi í tegundinni, né
aðrir kvillar, svo best sé vitað. Að velja
ábyrgan ræktanda er alltaf mikilvægt hvað
varðar m.a. heilsu hundsins.
Eyrnasýking
Shih tzu geta fengið eyrnasýkingu. Eigendur geta
hjálpað til að við koma í veg fyrir
sýkingar (eyrnabólgu) með því
að halda eyrunum hreinum. Það vaxa hár
innan í eyrunum, ef það safnast of mikið
hár fyrir þarf að fjarlægja þau,
svo betur lofti um eyrun.
Augnmeiðsl
Vegna lögun andlitsins á Shih Tzu geta þeir
auðveldar meiðst á auga. Flesta augnskaða
er hægt að koma í veg fyrir með aðgætni
eiganda. Í fyrsta lagi verður eigandinn að
hreinsa reglulega í kringum augun. Einnig með því
að hreinsa augun og fylgjast með þeim reglulega,
tekur þú eftir ef eitthvað er að. Það
er skynsamlegt að skoða vel alla hunda, sama af hvaða
tegund daglega, til að ganga í skugga um að
allt sé í lagi. Binda þarf toppinn alltaf
upp til að hárin fara ekki í augun. Einnig
ef hundurinn er stuttklipptur þarf að fylgjast vel
með hárvexti í kringum augun.
Vaxandi
sjónurýrnun PRA
Íslenskir Shih Tzu hundar hafa alveg sloppið við
PRA, þá á mestan þátt gott
val á ræktunardýrum erlendis frá.
PRA er ekki algengt í Shih Tzu, en hefur komið
upp erlendis. PRA er sjúkdómur sem hrjáir
margar hundategundir og hann hefur líka greinst í
fólki. Einkenni eru fyrst í stað vaxandi
rökkurblinda og síðan næturblinda, sjónin
smáversnar þar til hundurinn hefur að fullu
tapað sjón. Erlendir sérfræðingar
á vegum Hundaræktarfélagsins skoða
augun í hundum hér á Íslandi og
er sú skoðun framkvæmd tvisvar á ári,
á vorin og haustin.
Renal
Dysplasi
Nýrnaveiki sem kemur yfirleitt fram hjá ungum
hundum. Þekkist í Shih Tzu ekki algengt þó,
hefur aldrei greinst hér á landi, og ekki á
norðurlöndunum í nokkur ár.
Feldhirða
Þú spyrð kannski hvað feldhirða kemur
heilsu við. Skortur á feldhirðu og almennri
umhirðu, geta leitt til ýmissa heilsuvandamála.
Flæktur feldur getur leitt til sára og sýkingar.
Flæktur feldur í andliti getur einnig leitt til
augnmeiðsla. Ef hundurinn er mikið flæktur,
toga hnútarnir í húðina og það
getur verið mjög óþægilegt fyrir
Shih Tzuinn þinn. Einnig er ráðlegt að
þurrka hundinn eftir að hann er blautur eftir t.d.
göngufeð, þá einnig vel á fótunum
og milli þófnna til að koma í veg
fyrir sveppasýkingu.
*
Hérna var aðeins tekið fram hvað GÆTI
gerst. Flestir Shih Tzuar lifa góðu lífi
án kvilla af neinu tagi.
|