. Á Íslensku
.

Fréttir
Ættbóka gagnagrunnur
Um tegundina
Hvolpar
Sýningar
Greinar
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


Myndasafn
Gestabók



. In English
.

News
Pedigree database
The breed
Litters
Shows
Articles
Misc
Links
E-mail´s


Photogallery
Guestbook

 

 

 

 

 

 

Heilsa
Shih Tzu er almennt heilbrigð, langlíf tegund. Að vanda valið á hvolpinum er alltaf mikilvægt hvað varðar m.a. heilsu hundsins.

Hérna var aðeins tekið fram hvað GÆTI gerst. Flestir Shih Tzuar lifa góðu lífi án kvilla af neinu tagi.

PRA (Vaxandi sjónrýrnum)
Vaxandi sjónurýrnun er hópur sjúkdóma með sömu sjúkdómseinkenni er hafa mismunandi lífeðlisfræðilegan framgang eftir því hvaða hundategund á í hlut. Sameiginlegt hjá þeim öllum eru þó skemmdir á stöfum og keilum - ljósnæmum frumum sem staðsettar eru í sjónhimnunni - og er í raun hægt að tala um sjónurýrnun. Sjúkdómurinn er erfðasjúkdómur er erfist á svokölluðu víkjandi erfðamynstri (autosomal ressiv).

Vegna þessa erfðagangs eru nær allir hundar, sem fá sjúkdóminn, hreinræktaðir. Sjúkdómurinn virðist ekki koma fram hjá öllum hundakynjum og er nokkuð breytilegt hvernig sjúkdómurinn þróast og á hvaða aldri hann kemur fram eftir því hvaða hundakyn á í hlut. Til að flækja málin enn frekar getur hann tekið á sig mismunadi myndir jafnvel innan sama gots.

Einkenni eru fyrst í stað vaxandi rökkurblinda og síðan næturblinda, sjónin smáversnar þar til hundurinn hefur að fullu tapað sjón. Oft kemur einnig fram aukið "endurskin" í augunum. Ský getur komið fram á augasteini og er það oft það sem eigendur telja að sé ástæða blindu í hundum þeirra. Gláka getur einnig komið fram í kjölfarið svo og framfall á linsu (luxatio lentis).
PRA hefur greinst á Íslandi í Shih Tzu.


* Lesa grein um PRA, eftir Helgu Finnsdóttur, dýralækni

PNP (Progressive nephropathy)
Vaxandi nýrnasjúkdómur sem að orsakast af meðfæddri vanþróun um nýrum. Hundar sem hafa pnp geta byrjað að sýna merki um sjúkdóminn um 2-6 mánaða aldur. Hundar með minna alvarlegan galla geta stundum lifað án einkenna í 4-7 ár. Einkenni bilaða nýrna er aukning á þorsta og þvag framleiðslu, minni matarlyst. Í síðari stigum sjúkdómsins verður eitrun, uppköst, niðurgangur og ofþornun. Skert nýrnastarfsemi greinist með blóð- og þvag sýni.

Sjúkdómurinn hefur þekkst í Shih Tzu tegundinni, en hægt er að DNA prufa hvort hundur sé með eða beri sjúkdóminn.
Þessi sjúkdómur óalgengur í tegundinni dag.
Hér er mjög góð grein um PNP í Shih Tzu


Augnmeiðsl

Vegna lögun andlitsins á Shih Tzu geta þeir auðveldar meiðst á auga t.d. í leik við aðra hunda eða ef hundar lenda í slag geta þeir meitt sig á auga. Flesta augnskaða er hægt að koma í veg fyrir með aðgætni eiganda. Í fyrsta lagi verður eigandinn að hreinsa reglulega í kringum augun. Einnig með því að hreinsa augun og fylgjast með þeim reglulega, tekur þú eftir ef eitthvað er að. Það er skynsamlegt að skoða vel alla hunda, sama af hvaða tegund daglega, til að ganga í skugga um að allt sé í lagi. Binda þarf toppinn alltaf upp til að hárin fara ekki í augun. Einnig ef hundurinn er stuttklipptur þarf að fylgjast vel með hárvexti í kringum augun.

Bakmeiðsl
Shih Tzu er með langt bak og stutta fætur, það eru þeirra einkenni. En vegna þessa eru þeir í meiri hættu hvað varðar bakmeiðsl eins og t.d. brjósklos. Að halda þeim í formi og hreyfa þá skynsamlega er góð fyrirbygging.


Eyrnasýking
Shih tzu geta fengið eyrnasýkingu því tegundin er með lafandi, loðin eyru. Eigendur geta hjálpað til að við koma í veg fyrir sýkingar (eyrnabólgu) með því að halda eyrunum hreinum og passa að þau blotni ekki að innan t.d. þegar hundurinn fer í bað. Það vaxa hár innan í eyrunum, ef það safnast of mikið hár fyrir er betra að klippa þau burt eða reyta, svo betur lofti um eyrun.

Feldhirða
Þú spyrð kannski hvað feldhirða kemur heilsu við. Skortur á feldhirðu og almennri umhirðu, geta leitt til ýmissa heilsuvandamála. Flæktur feldur getur leitt til sára og sýkingar. Flæktur feldur í andliti getur ennig leitt til augnmeiðsla. Ef hundurinn er flæktur, toga hnútarnir í húðina og það getur verið mjög óþægilegt fyrir Shih Tzuinn þinn og valdið húðsýkingum. Einnig er ráðlegt að þurrka hundinn eftir að hann er blautur eftir t.d. gönguferð með handklæði t.d. Þá einnig vel á fótunum og milli þófnna til að koma í veg fyrir sveppasýkingu.
Shih Tzu hafa viðkvæma húð, og því ber að hugsa vel um feld og vanda vel til mataræðis hundsins.

Öfugur hnerri
Öfugur hnerri er það yfirleitt kallað þegar að hundar gefa frá sér skrítið öndunarhljóð sem hljómar eins og oföndun eða öfugur hnerri því þeir taka mikið að lofti inn í sig og margir virðast stressaðir.
Það eru skiptar skoðanir um hvað þetta í raun og veru er en hundar með stutt trýni s.s. Shih Tzu og Cavalier eru líklegri til að fá þetta. Einnig getur þetta verið húðflipi í hálsinum sem límist aftur í kok. Ekki hafa áhyggjur þetta genur yfir á nokkrum sekúndum og er hættulaust. Besta leiðin til að stoppa þetta er að staðsetja fingur yfir nasaopið svo þeir þurfi að anda í gegnum munninn, eða róa hundinn einfaldlega niður.

Endaþarmskirtlar
Allir hundar hafa endaþarmskirtla. Það eru kirtlar sem liggja með göngun við endaþarminn. Þessir kirtlar geta stíflað og þarf að fylgjast með þeim reglulega. Sjá grein um endaþarmskirtla

* Hérna var aðeins tekið fram hvað GÆTI gerst. Flestir Shih Tzuar lifa góðu lífi án kvilla af neinu tagi.