. Á Íslensku
.

Fréttir
Um tegundina
Ættbækur
Hvolpar
Sýningar
Myndir
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


. In English
.

News
The breed
Pedigree
Litters
Shows
Photos
Misc
Links
Guestbook
E-mail

 

 
Hvolpar fæddir

Þrír Shih Tzu hvolpar fæddust á dögunum hjá Íseldar ræktun (Soffía Kw.) undan Santosha Angel Dust og ISCH Íseldar Lille Big Man. Heilsast móður og hvolpum vel, og komu hvolparnir pattaralegir í heiminn í kringum 250 gr. Kynjaskiptin voru tvær stelpur og einn strákur.
Myndir koma seinna!

Alþjóðleg haustsýning HRFÍ 2008

Alþjóðleg hundasýning HRFÍ var haldin 27-28 september með pompi og prakt. Shih Tzu var sýndur á sunnudegi og voru hvorki meira né minna en 20 hundar skráðir sem er metþáttaka hjá tegundinni! Frábært alveg! Einnig var Shih Tzu deildinn með bás þar sem að tegundin okkar var kynnt og höfðu margir orð af því hve blíðir og góðir hundar þetta eru, og eiga hundar og eigendur þeirra sem voru í básnum hrós skilið.

Besti hundur tegundar með sitt 3 Cacib var ISCH Shabanoun Mulberry Max
Besta tík tegundar með meistarastig og Cacib var Molly (Varð meistari í dag!)
Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða var Ta Maria Beat The Fantasy
Besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða var Gullroða Gratton (varð hann einnig besti hvolpur sýningar sunnudagsins!!)

Rakkinn sem vann meistarastigið var Perluskins Because I´m A King

Dómari var Annaliiisa Heikkinen frá Finnlandi.
Til hamingju með árangurinn!

Myndir frá sýningunni má finna hér, Teknar af Aðalsteinu Gísladóttur - Myndir teknar af www.briard.is

Video frá sýningunni tekið af Kolbrúnu Eddu, fleiri video væntanleg: Partur 1 - Partur 2

Smáhundakynning í garðheimum

Smáhundakynnig var haldin í Garðheimum helgina 13-14 september, og voru Shih Tzu hundar meðal annars kynntir, auk annara smáhundategunda innan HRFÍ. Gekk helgin vel og voru hundarnir til sóma og góð fyrirmynd fyrir tegundina! Ef einhver tók myndir, væri gaman að fá þær sendar til að birta á síðunni. anja@shihtzuhundar.com

Mika komin úr einangrun

Shih Tzu rakkinn Mika sem fluttur var inn frá Finnlandi er komin úr einangrun og fór vistin vel í strákinn kátur og hress, en fegin var hann að komast á nýja heimili sitt og leika við hina voffana. Stefnir Mika á sýninguna í september ásamt 20 öðrum Shih Tzu hundum sem eru skráðir til leiks!

Snyrtikvöld

Snyrtikvöld var haldið og tókst bara vel til þann 1.sept. sl heima hjá Ingibjörgu á Álftanesinu, þar sem að Shih Tzu eigendur hittust og miðluðu reynslu sinni. Anja Björg Kristinsdóttir, hundasnyrtir baðaði og blés Shih Tzu strákinn Cruz og fór í gegnum hvernig er best að hirða hundana.

Cruz fékk sér fegurðarblund eftir snyrtinguna.

Sýningarþjálfun

Schnauzerdeild, Fuglahundadeild, Pinscher Mastiff og Fjallahundadeild ásamt Shih tzu deild verða með sýningarþjálfun í Reiðhöll Andvar á eftirfarandi dögum:

Miðvikudagurinn 3 sept kl 20
Miðvikudagurinn 10 sept kl 20
Miðvikudagurinn 17 sept kl 20
Miðvikudagurinn 24 sept kl 20

Sýningarþjálfun kostar kr. 500 í hvert sinn. Allir velkomnir. Munið eftir sýningataum, nammi og skítapoka.
Stjórnin

Nýr Shih tzu til landsins

Hann heitir Mika eða Ta Maria Beat The Fantasy í ættbók og kemur frá Finnlandi. Hann er í eigu Önju Bjargar Kristinsdóttur og er 5 mánaða gamall, svartur og hvítur á litinn.
Dvelur Mika nú í einangrun í Hrísey og bíður eftir að komast á nýja heimilið sitt, og hitta nýju Shih Tzu bræður sína Max og Anton.

Hundasnyrtir á Suðurnesjum

Kata Pólska stelpan sem var að vinna hjá Möggu hún er farinn að taka einn og einn hund heim til sín í snyrtingu . Kata er ófrísk þannig að hún getur ekki ráðið sig í vinnu eins og er, þess vegna ákvað hún að græja sig upp og gera þetta bara heima , þið sem eruð hér á suðurnesjunum endilega að bjalla í hana hún býr í Garðinum og hér er síminn hennar 857-7359 .

Nýr Shih tzu til landsins

5 hvolpar fæddust hjá Gullroða ræktun, Ingibjargar Jafetsdóttur. Undan Molly og Aksu Ready For Love. Þeir eru fæddir 26 maí 2008

Það komu í heiminn 2 tíkur og 3 rakkar í litunum svartur og hvítur, og svo gull og hvítur. Þeir hafa allir fengið heimili.
Fleiri myndir af hvolpunum hér

23.7.08

Sérsýning í Svíþjóð

Shih Tzu tík frá Íslandi Perluskins Because I´m A Princess undan Stínu og Max, sem býr í Svíþjóð var sýnd á sérsýningu fyrir Shih Tzu þar í landi og var Junior class winner með CK (meistaraefni). 10 mánaða gömul. Skemmtileg frétt þetta!

5 Shih Tzu hvolpar fæddir

5 hvolpar fæddust í síðasta mánuði hjá Gullroða ræktun, Ingibjargar Jafetsdóttur. Undan Molly og Aksu Ready For Love.

Nú komu í heiminn 2 tíkur og 3 rakkar í litunum svartur og hvítur, og svo gull og hvítur. Tveir rakkar leita nú að framtíðar heimilum. Myndir af hvolpunum koma inn bráðlega.

Uppls. um hvolpana: ingagudrun@simnet.is Sími: 691 0938 / 565 0938

Heimsýningin 2008

Þó nokkrir Íslendingar skelltu sér á heimsýninguna Í Svíþjóð í byrjun Júlí. Þar á meðal nokkrir Shih Tzu eigendur. Var þetta frábær ferð og mikið af hundum að skoða. Nokkrar myndir má sjá hér, fleiri væntanlegar.

Úrslit sýningar

15 Shih Tzuar kepptu á sumarsýningu Hundaræktarfélags Íslands, 11 rakkar og 5 tíkur. Dómari var Roberto Velez-Pico frá Puerto Rico.
Shih Tzu deildin var svo með kynningarbás fyrir tegundina og tókst vel til

Besti hundur tegundar var ISCH Shabanoun Mulberry Max
Besta tík tegundar með sitt fyrsta meistarastig var ungliðinn Viola-hirta's Issey Miyake.
Besti hvolpur tegundar í eldri flokki og jafnframt besti hvolpur sýningar 4 sæti var Perluskins Tom Cruise
- Myndir má sjá hér (Ljósmyndarar sýningar voru Aðalsteina Gíslad. og Kristinn Grétarsson)
- Frekari úrslit hér



ISCH Shabanoun Mulberry Max & Viola-hirta's Issey Miyake. ..........Perluskins Tom Cruise

Ótrúlegur hundur

Shih Tzu tíkin Precious sem er nú 9 ára gömul er alveg ótrúleg. Eigendur hennar sem er fjölskylda í Bandaríkjunum, tóku hana að sér því að hún þurfti heimili fyrir nokkrum árum síðan. Þau búa í hjólhýsi og Cyndi dóttir þeirra er fötluð í hjólastól og er flogaveik. Precious lætur vita um 20 mínútum áður en Cyndi fær kast, hún hleypur i kringum hana, vælir og krafsar og sækir móðir hennar til að láta vita. Precious fékk aldrei sérstaka þjálfun heldur hefur hún gert þetta frá upphafi upp á eigin spítur og hefur reynst þeim mikil lífsbjörg.

Ákveðnar hundategundir virðast sérstaklega vel geta greint flog áður en manneskjan fær þau þ.á.m. Þýskur Fjárhundur, Border Collie, Labrador og Shih Tzu!
Mercury News greindi frá

Cruz með Albúm


Það er svo gaman hvað Shih tzu eigendur eru duglegir að senda inn myndir af hundunum sínum! Cruz er nýkomin með sitt eigið albúm sem má sjá hér.

Minnum á að Shih Tzu eigendur eiga kost á því að eignast myndaalbúm að kostnaðarlausu fyrir Shih Tzu hundinn/hundana sína hér á síðunni. sendið tölvupóst á anja@shihtzuhundar.com

Stjórn Shih tzu deildar HRFÍ

Í stjórn Shih tzu deildar eru Aðalsteina Gísladóttir, Súsanna Antonsdóttir, Soffía Kwaszenko, Málfríður Baldvinsdóttir og Karlotta Pálmadóttir.

Stofnun Shih Tzu deildar samþykkt.

Á aðalfundi HRFÍ 15. maí sl. var tekin fyrir umsókn um Shih Tzu deild. Var umsóknin leyfð og á stofnfundur að haldast innan mánaðar.
Til hamingju með þetta Shih Tzu eigendur!

Tamerlín í sumarskapi


Tamerlín er sko tilbúin fyrir sólina og sumarið eins og sjá má á þessari mynd af skvísunni.

Ný tík til landsins

Viola-hirta's Issey Miyake eða Issey eins og hún er kölluð er nýjasta viðbótin við Shih Tzu stofninn á Íslandi. Hún kemur frá Noregi og er einlitt gull með svarta grímu. Eigandi hennar er Aðalsteina Gísladóttir og er hún nú í einangrun í Höfnum og bíður eftir að komast á nýja heimilið sitt.

(13.03.2008)

 

 

 

Úrslit sýningar 1 mars 2008

Það voru 16 Shih Tzu hundar skráðir á alþjóðlegu sýninguna 1 mars 2008. Dómari var Arne Foss frá Noregi.
Besti hundur tegundar var Danilos Passion O´the Game með meistarastig. Annars besti rakki með Cacib var ISCH Shabanoun Mulberry Max.

Besta tík tegundar var Gullroða Lucia með meistarastig. Önnur besta tík var ISCH Íseldar Dags-Birta.

Besti hvolpur tegundar var Perluskins Because I´m Wise.

Myndir frá sýningunni má sjá hér

Myndasafnið

Minnum á að Shih Tzu eigendur eiga kost á því að eignast myndaalbúm að kostnaðarlausu fyrir Shih Tzu hundinn/hundana sína hér á síðunni. Það sem þið þurfið að gera er að senda mail á anja@shihtzuhundar.com og taka fram að þið óskið eftir albúmi, svo fáið þið sendar upplýsingar ásamt lykilorði.

Nokkur ný myndasöfn hafa bæst við Leó, Sólon, og Hermann.

Smáhundadagar í Garðheimum 9-10 febrúar

Hinir árlegu smáhundadagar voru haldnir í garðheimum um helgina, og voru Shih tzu eigendur á staðnum til að kynna tegundina. Tókst vel til og hundarnir stóðu sig eins og hetjur! Hægt er að sjá myndir hér.

 
Hvolpamynd!


Hvað er skemmtilegra en að skoða myndir af sætum Shih Tzu hvolpum! Hvolparnir hennar Lunu og Merlin eru 4 vikna á þessari mynd. Hægt er að sjá fleiri í albúminu þeirra


Þann 10. janúar fæddust 5 lítil og hraust hvolpaskott. Fyrst komu 4 strákar og svo ein stelpa í lokin og verða þeir 3 vikna næsta fimmtudag, braggast öll mjög vel:) Foreldrar eru Íseldar La Luna og ISCH Camella The wiched One.


 
Úrslit sýningar

Besti hundur tegundar var Santosha Angel Dust "Mayday". Annar besti hundur tegundar var Perluskins All In My Dream "Lassi". Besti hvolpur tegundar í yngri flokk var Perluskins Because Im a King "Brúnó". Besti hvolpur tegundar í eldri flokk var Gullroða Aida Dómari var Kitty Sjong frá Danmörku.

Það voru 17 Shih Tzuar sem tóku þátt. Þetta var í fyrsta skipti sem þeir eru dæmdir með nýju sýningarreglunum.

Smelltu hér til að sjá nokkrar myndir frá sýningunni teknar af Gyðu Hennings
En vantar inn úrslit nokkurra hundanna, endilega sendið þau inn!


Santosha Angel Dust.......................Perluskins All In My Dream......

Shih Tzu tík frá Íslandi flutti til Svíþjóðar

Hún Bettan (Perluskins Because I´m A Princess) ) er Shih Tzu tík sem að fæddist hér á landi 16.9.07 og flutti 3 mánaða gömul út til Svíþjóðar til ræktanda þar í landi. Það verður spennandi að fylgjast með Íslandsfaranum á sýningum í Svíþjóð

Hún er undan ISCH Tibet´s Prides Drop Dead Beautiful of ISCH Shabanoun Mulberry Max.

 

 

 

 

Úrslit október sýningar 2007

Það voru 10 Shih Tzu hundar sem sýndir voru á alþjóðlegu sýningu HRFÍ. Dómari var Jouko Leviska frá Finnlandi.
Besti hundur tegundar með sitt þriðja meistarastig og*CACIB var Shabanoun Mulberry Max
Besta tík og annar besti hundur tegundar var ISCH Íseldar Dags-Birta "Birta" með sitt 3 cacib.
Besti hvolpur tegundar var Gullroða Lucia "Suri" hún varð einnig í 4 sæti yfir besta hvolp sýningar yngriflokks
Nánari úrslit

Myndir frá sýningunni hér

 


Úrslit sýningar 23 júní 2007

9 Shih Tzu hundar sýndu sig í reiðhöllinni í víðidal á sumarsýningu HRFÍ. Dómari var Fernando M. Rodrigues, frá Portúgal.
Besti hundur tegundar með sitt annað meistarastig var Shabanoun Mulberry Max (Max).
Annar besti hundur tegundar með sitt fyrsta meistarastig var tíkin Fantasía hjá Íseldar (Ronja).

Annar besti rakki var Tibets Prides way of the Dragon (Anton), sá þriðji var Heikir (Bangsi).
Fleiri myndir hér

 

Eldri fréttir

Þú ert gestur númer,


2001 - 2007 © Copyright.
Heimasíðugerð og vefumsjón: Anja Björg Kristinsdóttir.
Sendu póst á vef.