. Á Íslensku
.

Fréttir
Ættbóka gagnagrunnur
Um tegundina
Hvolpar
Sýningar
Greinar
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


Myndasafn
Gestabók



. In English
.

News
Pedigree database
The breed
Puppies
Shows
Articles
Misc
Links
E-mail´s


Photogallery
Guestbook

 

 

Hvað er opin sýning?
Opnar sýningar eða "inoffical shows" eru mjög vinsælar erlendis en nýtt á nálinni hér á landi. Þær eru frábrugðnar meistarastigs- og alþjóðlegum sýningum því ekki eru gefin meistaraefni, meistarastig, eða CACIB. Tegundaklúbbar halda yfirleitt slíkar sýningar.

Á opnum sýningum dæma yfirleitt reyndir ræktendur eða aðrir sem hafa mikla þekkingu á tegundinni. Á opnu Shih Tzu sýningunni 3.6.2010 var dómarinn okkar með full dómararéttindi og hefur dæmt Shih Tzu víða um heiminn og er mikil áhugamanneskja um tegundina.

Dómarinn skoðar hundinn samkvæmt ræktunarmarkmiði tegundarinnar líkt og á öðrum sýningum. Oft eru skriflegar umsagnir og einkunnir gefnar, og alltaf er raðað í sæti.
Reglurnar a opnum sýningum eru rýmri, sem gefur sýningarhöldurum meira svigrúm hvað skipulag varðar. Þessvegna er hægt að hafa t.d. sérstaka flokka fyrir klippta hunda líkt og Freestyle flokkinn á fyrstu opnu sýningu Shih Tzu deildar. Þá keppa sama klipptir hundar og dómari skoðar m.a. byggingu og hreyfingu hundanna, gefur umsagnir og raðar í sæti.

Á opnu sýningu Shih Tzu deildar voru flokkarnir svohljóðandi: Hvolpaflokkur (4-9 mánaða), Ungliðaflokkur (9-24 mánaða), Opinn flokkur (+24 mánaða), Freestyle flokkur (klipptir hundar) og Öldungaflokkur (+8 ára). Besti hundur í ungliða- og opnum flokki kepptu saman um besta hund/tik tegundar. Síðan kepptu besti hundur og tík saman um besta hund tegundar. Bestu hundar tegundar, þ.á.m. úr hvolpaflokki, Freestyle og öldunga keppa síðan saman um Besta hund sýningar.

Opnar sýningar hafa marga kosti. Hérna fáum við tækifæri til þess að sýna okkar hunda, þar sem að opin sýning er sett upp eins og meistarastigs sýning og þess vegna ein besta sýningarþjálfun sem við mögulega getum fengið

Við höfum fáar sýningar hérlendis miðað við í hinum stóra heimi og er frábært tækifæri fyrir okkur að fá fleiri ræktunardóma á hundanna okkar, einnig á þá klipptu. Sem og auðvitað aðal atriðið að hafa gaman af! Hver og einn hundur fær umsögn/dóm frá dómaranum, en það er einmitt svo mikilvægt varðandi ræktun að fá dóma frá mismunandi dómurum á hundanna okkar.

Margir byrja á að sýna hundanna sína á opnum sýningum. Andrúmsloftið er ekki eins spennuþrungið og allt utanumhald minna í sniðum.