|
Persónuleiki
Shih
Tzu er hundur með mikin karakter. Hann er fjörugur,
kjarkmikill, nokkuð sjálfstæður og ánægður
hundur, og er fær um að halda áfram án
þess að sýna merki um öldrun. Hann er
rólyndur heimilishundur og góður félagi.
Shih
Tzu er ekki tegund sem getur búið í kennel,
Hann þráir mannlegt samfélag. Þessi
blíði og káti hundur þarf mikla ást
og umhyggju. Hann er harðger, heilbrigður og almennt
skapgóður. Shih Tzu verður strax einn af fjölskyldunni
og nýtur þess að vera í kringum hana.
Shih Tzu er virkur og athafnasamur hundur. Það ætti
ekki að draga það að stunda hlýðnikeppnir,
hundafimi og góða göngutúra með
þeim, vegna þess hve litlir þeir eru. Ekki
láta gabbast út af stærðinni og útliti.
Þeir eru sterkbyggðir litlir hundar sem geta auðveldlega
aðlagað sig að ýmsum lifnaðarháttum.
Shih Tzu getur aðlagað sig að lífi í
bæði í borg sem byggð.
Góður
varðhundur sem lætur vita ef ókunnugir nálgast
húsið, en geltir yfirleitt ekki að ástæðulausu
inn í húsinu, og tekur vel á móti
fólki sem er samþykktir af fjölskyldunni.
Shih
Tzu er barngóður og einnig góður með
öðrum gæludýrum og hundum. Hann er bæði
nokkuð þrjóskur og snjall en bregst vel við
samkvæmri og þolinmóðri þjálfun.
Shih
Tzu hundar geta einblínt á þig í
langan tíma, og fylgst með því hvað
þú ert að gera og beðið eftir að
kallað verði á þá,
til að gælt verði við þá. Engir
tveir hundar eru eins, og er eisntakur karakter í hverjum
og einum.
Meðalaldur
hjá Shih Tzu er 12-14 ár, þeir eru hvolpar
langt fram eftir aldri, ef ekki alla ævi.
Það
er ekki auðvelt að skilgreina persónuleika
Shih Tzu hunda. Til að skilja og upplifa persónuleika
þessa sérstæða hunds þarf maður
að eiga hann.


|