.
Á Íslensku
 .
In English

|
|
|

-
Aldrei skilja hvolpinn/hundinn eftir
með hálsól, beisli eða taum á
sér eftirlitslausan, hvort sem er inn í
bíl eða í búri. Hann gæti
flækt sig og kafnað.
Skiljið
hund aldrei eftir í bíl án
þess að hafa rifu á gluggum. Í sólskini
eða í heitu veðri skal aldrei skilja hundinn
eftir í bílnum. Bílinn verður sjóðheitur
á nokkrum mínútum, þrátt
fyrir rifu á gluggum og hundurinn getur fengið
hitaslag og dáið.
- Hvolpurinn/
hundurinn skal alltaf hafa aðgang að
drykkjarvatni.
- Hvolpurinn
þarf að borða fjórum sinnum á
dag þangað til að hann eru.þ.b. 4. mánaða.
Þá má minnka í 3 máltíðir
á dag, svo í 2 eða eina þegar hann
er orðin um 6-7 mánaða gamall.
- Fylgjast
þarf svo með þyngd og holdarfari hvolps
/ hunds.
- Hundum
skal aldrei gefið elduð bein undir neinum kringumstæðum.
Hráir nautsleggir eru einu beinin sem flestir dýralæknar
telja óhætt að gefa, þó ber
að varast að slys hafa orðið og þau
hafa staðið í hundum. Best er að gefa
hundum þar til gerð bein úr nautshúð,
til að naga. Þó er best að hafa alltaf
auga með þeim þegar þeir eru með
nag.
- Unga
hvolpa skal ekki hreyfa of mikið meðan þeir
eru að vaxa. Leikur í garði er fullnægjandi.
Ekki fara með hvolpa í lengri gönguferðir
fyrr en um 6 mánaða aldurinn, þá
má auka þær hægt og rólega.
10 mínútna ganga eru nóg fyrir hvolp.
- Passa
skal að hvolpurinn hoppi ekki niður úr mikilli
hæð og þvælist ekki mikið upp
og niður stiga fyrst um sinn. Shih Tzu hafa langt bak
og passa þarf að þeir fái ekki bakmeiðsl
eða hnikk í mjaðmir meðan þeir
eru að mótast og vaxa. Passaðu þig
að missa ekki hvolpinn og að óvanir og yngri
börn séu ekki að taka hann upp.
- Hundar
mega ekki fá súkkulaði,
vínber, rúsínur, lauk, Mikið magn
af lifur, mar hnetur, Xylitol gerfisætuefni þetta
getur valdið eitrunum hjá hundum neitt í
of miklu magni.
Annað sem ætti að varast að hundar komist
í: Nylonsokkar og allt úr nylonefni, lyf ætluð
mönnum, Rottu-og skordýraeitur, rabbarbarablöð,
plöntur og pottablóm, kartöflugrös,
frostlögur á bíla, þvottaefni og
önnur hreingerningaefni, batterí úr úrum,
ávaxtasteinar.
Gerðu
heimili þitt hvolpavænt. Rafmagnssnúrur,
smádrasl, glerbrot og annað sem hvolpurinn getur
farið sér á voða með þarf
að stúka af eða fjarlægja.
- Gott
húsráð er að setja vaselín
í skeggið til að halda því niðri
þegar þeir eru ungir og það stendur
allt út í loftið. Þá helst
það niður og frá augunum.
- Gott
er að eiga hitamæli fyrir hundinn. Venjulegur
tölvuhitamælir er notaður og stungið
í endaþarm hvutta eins og þegar börn
eru mæld. Ef hundurinn verður veikur spurja dýralæknar
um hitastig hans. Eðlilegt hitastig hunda er 38 - 39
gráður.
.
- Mundu
að ungir hvolpar þurfa að hvílast og
ná góðum svefn til að vaxa. Ekki skal
vekja sofandi hvolp og passa þarf að leika ekki
of mikið og lengi í einu. Hvolpar eru ekki leikföng,
hvorki fyrir börn né fullorðna.
- Mælt
er með að bólusetja hvolpa í fyrsta
sinn 7-9 vikna og endurtaka hana tvisvar sinnum með
3 vikna millibili. Eftir það eru hundar bólusettir
árlega. Bólusetning er aðferð til
að auka náttúrulegt viðnám
ónæmiskerfis líkamans. Hvolpar eru svo
ormahreinsaðir um leið, og sumir ræktendur
kjósa að ormahreinsa þá líka
fyrr 2-4 vikna
- Umhverfisþjálfaðu
hvolpinn/hundinn þinn svo að hann öðlist
sjálfsöryggi og verði óhræddur!
Þjálfaðu hvolpinn rólega við
allar aðstæður. Umferð, margmenni, stiga,
lyftur, bíla og aðra góða hunda.
- Shih
Tzu hvolpar eru hundar þó þeir séu
litlir, loðnir og agalega sætir. Þá
þarf að siða, venja og kenna eins og öllum
öðrum hundum. Ekki vorkenna hvolpinum ef hann verður
hræddur. Vertu vingjarnleg/ur og ákveðin.
Notaðu skipun eins og NEI og taktu jafnvel aðeins
í hnakkadrambið á honum þegar hvolpurinn
gerir rangt og hrósið ef hann gerir rétt,
það er ekki síður mikilvægt.
- Shih
Tzu eru það sem kallast er "Late whelpers"
þ.e.a.s fæðingarferlið getur tekið
lengri tíma en gengur og gerist hjá öðrum
tegundum.
- Dagleg
snyrting og handfjötlun er góð til að
venja hvolpinn við. Settu hann upp á borð,
skoðaðu tennur, augu, eyru og þreyfaðu
hann allan. Burstaðu mjúklega yfir hann til að
venja hann við alla handfjötlun síðar
meir. Einnig til að ganga úr skugga um að
allt sé í lagi.
- Byrjaðu
strax að gera hvolpinn þinn húshreinann.
Settu hann alltaf út strax og hann vaknar, einnig
þegar hann er nýbúinn að borða
og þegar hann hefur leikið sér. Litlir
hvolpar pissa mjög oft. Þú lærir
að þekkja einkennin þegar honum er mál.
Gott er að setja einnig dagblöð eða pissumottur
á gólfið við útidyr. Tilgangslaust
er að skamma hvolp ef hann gerir sitt inni ef hann er
ekki staðin að verki. Vertu þolinmóð/ur
og samkvæm/ur sjálfum þér við
að kenna hvolpinum hreinlæti. Það fer
eftir ÞÉR hve lengi hann er að ná
þessu.
- Gott
er að strá kartöflumjöli yfir pissubletti
í teppum svo ekki myndist gulir flekkir. Því
hvolpum finnst oft teppi hentugir staðir til að
pissa á.
- Vendu
hvolpinn þinn við tannburstun. Langbest er að
bursta tennur hunda reglulega með mjúkum barnatannbursta
og vatni til að komast hjá tannstein og tannskemmdum.
Því er gott að venja þá strax
við létta tannburstun með þegar þeir
hafa fengið allar tennurnar.
- Taktu
myndir af hvolpinum þínum, hann vex hratt ;-)
Tekið
saman af Önju Björgu Krinstinsdóttur
|
|
|
|