| Í
þessari frábæru grein sem gefin var út
að hálfu Sænska Shih Tzu klúbbsins
á dómararáðstefnu um tegundina. Þar
var rætt um kosti og galla tegundarinnar, af dómurum
sem hafa dæmt trgundina og Shih Tzu spesíalista,
hvað má bæta og hvað hefur farið
batnandi og hvað versnandi. Greinin er frá 1996,
Flest allt er þó svipað í dag og má
mikið af henni læra.
Þýdd
af Önju Björgu Kristinsdóttur
Ábending
og athugasemdir varðandi ræktunarmið tegundarinnar
Gefið út af Sænska Shih Tzu klúbbnum
(SST)
Á dómararáðstefnu 1996
Í
stuttu máli um þróun Shih Tzu í
Svíþjóð
þangað til um 1970 var tegundin mjög margs
konar í týpu og stærð. Lítil
höfuð, mjóir neðri kjálkar, skortur
á góðri höku og skærabit voru
ekki óvanaleg, jafnvel þó að flestir
hundar voru með undirbit (Á þessum tímum
var skærabit leyfileg samkvæmt ræktunarmiði,
jafnvel æskilegra).
Það var ekki óalgengt að sjá háfætta
hunda með flata brjóstkassa (ekki nógu breið
og sprengd rifbein). Feldgæði voru mjög margvísleg.
Svartur, grár eða gull bröndóttur með
hvítum flekkjum voru algengir litir. Einlitir hundar
voru mjög sjaldan séðir.
Góðu
punktarnir voru rétt pigment (hörundslitur í
kringum augu, nef og trýni), stór hringlaga
augu og gott geðslag. Hreyfingar voru oftast frjálsar
og rennandi með týpískri afturfótaspyrnu
eða “flick-up”.
Frá
1970 hefur tegundin orðið áþekkari í
stærð og tegundargerð. Höfuðlag hefur
batnað með breiðari kjálkum og sterkari
hökum. En við sjáum enn of mikið af hundum
með of þrönga kjálka með ekki nægilegu
rími fyrir 6 framtennur í beinni línu.
Augun í dag eru oftast stór og hringlaga, sem
gefur réttan svip, en stundum sjáum við
lítil og möndlulaga augu.
Með
að ræktendur séu meira vakandi og með
hjálp góðra ræktunardýra eru
mjóslegnir, háfættar týpur af hundum
óalgengari, í staðin sjáum við
tilhneiging gagnvart stuttum og ekki nægilega breiðum
bringubeinum og brjóstkössum.
Feldgerð
í dag er en margs konar, en með bættri umhirðu
og feld umsjón og vandaðar ræktunnar, hefur
feldur orðið betri og áþekkari. (Minna
um slitna og tjásulegar feldgerðir)
Litir:
Einlitir: Án hvítra skella, yfirleitt
dökkrauður með svarta grímu. Algengari
í kringum 1980 heldur en í dag.
Svartur og hvítur: Svartur með mismunandi miklum
hvítum skellum.
Svörtu og hvítu eru yfirleitt fallega litaskiptir
með hreinum litum. Þessi litur var algengari á
árunum 1960-1970.
Grár og hvítur: Frá dökk gráum
til fölleits silfur með hvítum flekkjum
Þessi litur er sjaldséður
Gull og hvítur: Gull, gulur eða rauður af öllum
litbrigðum með hvítum flekkjum.
Þessi litur hefur aukist síðan 1960-70.
Þetta er algengasti liturinn í dag.
Fölur gull eða krem og aðrir fölir litir:
Yfirleitt fölur gyltur eða honey með mismiklu
magni af hvítum flekkjum. Þetta er sá
litur sem er að aukast hvað mest. Pigmet í
kringum augu, á nefi og á loppum er mjög
gott í þessum lit.
Nú
á dögum hafa algengustu litirnir í Shih
Tzu breyst, þetta er líklegast vegna erfðafræðilegs
bakgrunns ræktunardýra og ekki vísvitandi
ræktun einstakra lita.
Hreyfingar
hafa batnað. Nú á dögum er í
heildina, góðar ákveðnar, rennandi hreyfingar
og góður balance milli fram- og afturfóta
hreyfinga. Þetta týpíska flick-up, þ.e.a.s.
að það sjáist í allan afturþófan
þegar hundurinn hreyfir sig að aftan er núna
augljóst hjá flestum hundum, en sumir mættu
hafa meiri kraft.
Ræktendur
eru flestir að vinna hart af því að rækta
Shih Tzu sem er bæði líkamlega og andlega
eins nálægt ræktunarmiðinu og hægt
er. Sama ræktunarmið sem við ætlum núna
að líta nánar á.
ALMENNT
ÚTLIT : Sterkbyggður, ríkulega
feldmikill hundur sem ber sig greinilega drambsamlega og með
krýsantemu-líkt andlit.
HEGÐUN / PERSÓNULEIKI : Greindur,
athafnasamur og árvakur. Vinalegur og sjálfstæður.
Shih Tzuinn er hornréttur í lögun og lengri
á búk, ferhyrntir og háfættir hundar
eru rangir!
Hátt
setta “teketils handfangs” skottið með
topp skotsins borið í nær láréttri
línu við höfuðið, gefur sannan og
réttan heildarsvip. Líkami gegnheill og lágfættur,
bringa breið og djúp, sameinast svo í fljótandi,
glæsileikum hreyfingum.
Ræktunariðið
leyfir mikið svigrúm í stærð.
Það er tekið til greina svo lengi sem tegundargerðin
og rétt hlutföll séu óskemmd.
Að tíkur séu kvennlegar og rakkarnir karlmannlegir
eru mikilvægt, en það er ekki skilgreint með
stærð hundsins.
Skapgerðin
er mikilvægur hluti af heildinni. Shih Tzu er vinalegur
og sjálfsöruggur gagnvart ókunnugum. Undir
engum kringumstæðum er feimni og árásarhneigð
ásættanleg. Hvernig hann ver hreykinn höfuðið
og hrokafullur svipurinn er mikilvægur þáttur
í Shih Tzu.
Frekari
athugasemd frá SST
Shih Tzu ætti að vera lengri heldur en hann er hár
að herðakambi. Ef að heildarmyndin gefur merki
um ferhyrndan eða stuttan hund, ætti að leiða
til lægri einkunnargjafar. Háfættur hundur
er alvarlegur galli!
Höguð
og höfuðkúpa
Höfuð breitt, hringlaga, breitt er á milli
augna. Lubbalegt höfuð með hári sem fellur
vel yfir augun. Mikið skegg og hökutoppur, Hár
sem vex upp á við á nefi gefur greinileg
krýsantemu-líkt áhrif.
Stærð
höfuðs ætti að vera í samræmi
við líkama. Enni hátt, breitt og kúpt.
Stopp djúpt og greinilegt. Frá stoppi að
enda höfuðkúpu og frá eyra til eyra,
ætti höfuðið að vera hringlaga. Kinnar
vel fylltar.. Andlit breitt og opið, breitt á að
vera á milli augna. Augun eru staðsett framhliða
eins og í mannfólki, þetta gefur athugandi
og tafarlausa augnsamand þeirra.
Trýnið
ætti að vera ferhyrningslaga, breitt og vel fyllt.
Sterkleg og breið haka, í jafnvægi við
trýnið, sem gefur rétta prófíl
með beinni línu frá toppi nefs til höku.
Varir eru beinar, nefs stutt, og ætti lengd að vera
í samræmi við hlutfall höfuðsins.
Nefsleður
stórt og hátt sett, þetta gefur austræna
svipinn. Þröng nasahol mjög óæskileg.
Trýni og nef sem vísar niður á við
er ótýpískt og gefur hundinum “heimskulegan”
svip.
Litarhaft
á nefsvæði ætti að vera óbrotið,
einnig á vörum og augnaumgjörðum. krýsantemu
svipurinn er aðeins sjáanlegur hjá hvolpum.
Gallar:
mjótt eða keilulaga höfuð. Mjóslegið
eða oddmjótt trýni. Flatt enni eða skortur
á stoppi. Veitið athygli lélegum hökum,
þetta er algengt vandamál.
Þegar skoðað er höfuðið er mikilvægt
að skoða vel hvað er undir hárunum og nota
hendurnar til að finan hvað er í raun og veru.
Snyrting og stylish hártoppur getur algjörlega
breytt svipnum.
Vinsamlegast
athugið að þú ættir að geta
séð bara með því að horfa
framan í hundinn hvort það sé tík
eða rakki á andlitinu og svipnum.
Frekar
athugasemd frá SST
aðþrengd og lítil nasaop eru afbrigðileiki.
Augun
Stór, dökk, hringlaga, staðsett vel í
sundur en ekki áberandi. Hlýlegur svipur. Á
lifur eða lifur flekkóttum hundum, ljósari
augnlitur leyfilegur. Ekki á að sjást í
neina hvítu, þegar hundurinn horfir beint fram.
Svipurinn
ætti að vera hlýr og vinalegur. Helst á
ekki að sjást í hvítuna þegar
hundurinn horfir beint fram.
Litarhaft ætti að vera óbrotið á
augnaumgjörð. Í lifur lituðum hundum eða
hundum með lifur litaða flekki, eru ljósari
augu og litarhaft í kringum þau leyfileg.
Lítil, með litlu millibili, möndlulaga augu
sem og taugaspennt augnarráð er ekki einkennandi
fyrir Shih Tzu.
Frekari
athugasemd frá SST
Augu sem sést í hvítuna á ætti
að leita til lægri einkunnagjafar.
Eyru
Stór, með síðu eyrnaleðri, borinn
lafandi. Sett örlítið neðar kórónu
höfuðkúpunnar, svo loðin að þau
virðast blandast við hárin á hálsi.
Hátt
sett eyru eyðileggja hringlaga lögun höfuðsins
Munnur
Breiður, örlítið undirbit eða beint
bit. Varir beinar
Breiður
kjálki er mjög mikilvægur. Með nægu
plássi fyrir 6 framtennur. Haka kröftug.
Það
að einna tönn vanti er viðunandi svo lengi sem
kjákinn sé breiður.
Í dag eru flestir Shih Tzuar með undirbit. Æskilegast
er að Shih Tzu hafi örlítið undirbit,
en nokkuð stærra undirbit getur verið ásættanlegt
svo lengi sem að það sjáist ekki í
tennur eða tungu hundsins þegar hundurinn hefur
kjaftinn lokaðan. Skærabit eða yfirbit er aldrei
leyfilegt.
Veitið
því athygli ef að vígtennurnar séu
litlar eða snúnar.
Munurinn á milli vígtanna og framtanna ætti
að vera augljós. Vöntun á vígtönnum
er ekki viðunandi.
Frekari
athugasemd frá SST
Vöntun á einni framtönn er ásættanleg.
En ef tvær eða fleiri vantar ætti það
að þýða lægri einkunnargjöf.
Ef vígtönn vantar, kjálki er snúinn
eða ef sést í tunguna þegar munnurinn
er lokaður er ekki æskilegt og ætti að
leiða til einkunnarinnar 0. Vanþroskaðar vígtennur
(framtennur sem eru í sömu stærð og
framtennur) eða snúnir jaxlar ættu að
leiða til lægri einkunnagjafar.
Háls
Í góði samræmi, ágætlega
boginn. Nægilega langur til þess að bera höfuð
tígulega
Lengd
hálsins ætti að vera í jafnvægi
við hæð skottsins, það gefur rétta
heildar útlínuna.
óhóflega langur háls er ekki æskilegur,
en lögun hálsins er mikilvægur. Tegundin
á að hafa stórt höfuð og því
ætti hálsinn að vera kröftugur, djúpur
og sterkur, vel á settur, bringa vel þroskuð,
axlir og olnbogar vel settir aftur.
Líkami
Í þýðingu

|