| 
FCI-ræktunarmarkmið Nr. 208 / 20.04.1998
UPPRUNI : Tíbet.
HEIMALAND
: Bretland.
ÚTGÁFUDAGSETNING
GILDANDI STAÐALS : 24.06.1987.
ÍSLENSK ÞÝÐING: Anja
Björg Kristinsdóttir. - Óstaðfest þýðing.
NOTKUN:
Selskapshundur.
FLOKKUN
F.C.I : Tegundahópur 9 Selskaps- og Gæluhundar.
5-grein Tíbetskar tegundir
Án vinnuprófs.
ALMENNT
ÚTLIT : Sterkbyggður, ríkulega
feldmikill hundur sem ber sig greinilega drambsamlega og með
krýsantemu-líkt andlit.
HEGÐUN
/ PERSÓNULEIKI : Greindur, athafnasamur og
árvakur. Vinalegur og sjálfstæður.
HÖFUÐ
: Höfuð breitt, hringlaga, breitt er á
milli augna. Lubbalegt höfuð með hári
sem fellur vel yfir augun. Mikið skegg og hökutoppur,
Hár sem vex upp á við á nefi gefur
greinileg krýsantemu-líkt áhrif.
HÖFUÐSVÆÐI
:
Ennisbrún (stopp): Greinilegt.
ANDLITSSVÆÐI :
Nef : Svart en dökk lifur á lifur eða lifur
flekkóttum hundum. Efsti hluti á nefbakinu ætti
að vera í línu með eða örlítið
fyrir neðan lægstu augnumgjörð. Nef sem
vísar niður á við mjög óæskillegt.
Víð og opin nasahol. Aðþrengd nasahol
mjög óæskileg.
Trýni
: Af rúmgóðri breidd, ferhyrnt, stutt, ekki
hrukkótt, flatt og loðið. Lengd um 2.5 cm frá
enda að stoppi. Nefsbrúin bein eða örlítið
hvolfhöll. Hörundslitur á trýni eins
óbrotinn og hægt er.
Varir : Beinar.
kjálki /Tennur : Breiður, örlítið
undirbit eða beint bit.
Augu : Stór, dökk, hringlaga, staðsett vel
í sundur en ekki áberandi. Hlýlegur svipur.
Á lifur eða lifur flekkóttum hundum, ljósari
augnlitur leyfilegur. Ekki á að sjást í
neina hvítu.
Eyru : Stór, með síðu eyrnaleðri,
borinn lafandi. Sett örlítið neðar kórónu
höfuðkúpunnar, svo loðin að þau
virðast blandast við hárin á hálsi.
HÁLS
: Í góði samræmi, ágætlega
boginn. Nægilega langur til þess að bera höfuð
tígulega
BOLUR:
Lengri á milli herðakambs og rót rófu,
heldur en hæð á herðakambi.
Bak : Beint.
Lendar: Vel tengdar og sterkbyggar.
Bringa : Breið og djúp.
Rófa
: þunglega fjaðraskúfuð borin
glaðlega vel yfir bakið. Hátt sett. Hæð
hér um bil jöfn við þá úr
höfuðkúpu til að gefa jafna útlínu.
ÚTLIMIR
FRAMHLUTI:
Leggir stuttir og vöðvamiklir með ríflegum
beinum, eins beinir og hægt er, miðað við
breiða bringu sem er vel sett niður.
Herðar : Þéttar, vel lagðar aftur.
AFTURHLUTI : Leggir stuttir og vöðvamiklir með
ríflegum beinum. Beinir þegar þeir eru
séðir frá bakhlið. Leggir líta
út umfangsmiklir vegna gnægðar af hárum.
LÆRI
: Vel hringlaga og vöðvastælt.
FÆTUR
: Hringlaga, þéttir og vel fylltir, virðast
stórir vegna gnægðar af hárum.
GANGUR
/ HREYFING : Drambsamur, mjúklega rennandi,
framfætur teygja vel fram á við, kröftugar
aftur hreyfingar sem sýna allan þófann.
FELDUR
Hár
: Síð, þétt ekki krulluð, með
góðum undirfeldi. Örlítið liðaður
leifilegur. Eindregið mælt með að hár
á höfði sé bundið upp.
LITIR
: Allir litir leyfilegir, hvít blesa á enni
og hvít týra æskileg í marglitum
hundum.
STÆRÐ
OG ÞYNGD :
Hæð á herðakamb : Ekki hærri en
26.7 sm. Týpa og tegundaeinkenni eru það
mikilvægasta og ætti ekki í neinum tilfellum
að vera fórnað fyrir stærðinni einni.
Þyngd
: 4.5 til 8.1 kg (10-18 lbs). Upplögð þyngd
4.5 - 7.3 kg (10-16 lbs).
GALLAR:
Öll frávik frá ofantöldum atriðum
skulu vera álitinn galli. Þeir dæmast í
réttu hlutfalli við hve alvarleg frávikin
eru.
|