. Á Íslensku
.

Fréttir
Um tegundina
Ættbækur
Hvolpar
Sýningar
Myndir
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


. In English
.

News
The breed
Pedigree
Litters
Shows
Photos
Misc
Links
Guestbook
E-mail

 

 

Hrúturinn (21.mars- 19. apríl)
Hrúturinn er djarfur, orkumikill og ávallt í leit að ævintýrum. Hann elskar að fara í göngutúra og vill helst leiða eiganda sinn á nýjar slóðir. Sjálfstraustið kemur þeim oft í vafasama stöðu. Þessi Shih Tzu mun alltaf finna upp á nýjum prakkarastrikum. Þú þarft að koma honum í skilning um hver er húsbóndinn, því hann heldur að það sé hann.

Nautið (20 apríl- 20 maí)
Shih Tzu í nautsmerkinu er ástúðlegur og kelinn. Að vera nálægt þér er það besta í lífi hans. Þegar þú skilur hann eftir einann heima skaltu láta hann fá einhverja flík sem þú átt t.d. sokk með lykt af þér, til að honum finnist hann öruggur. Hann getur verið miskunnarlaus verndari ef honum finnst þú vera í hættu. Hann er þrjóskur og lætur vita ef honum mislíkar eitthvað.

Tvíburarnir (21 maí- 20júní)
Hundurin þinn er fljótur að læra. Ef þú skilur forvitna, oft taugaspennta Shih Tzu hundinn þinn eftir of lengi heima átt þú von á að fá annað hvort kvartanir frá nágrönnunum vegna hávaða eða þú kemur heim að nöguðum sokkum eða skóm. Hann elskar virkt og athafnasamt fólk. Horfðu í augun á honum og talaðu við hann, þá yfirleitt sveigir hann höfuðið og starir hissa á þig.

Krabbi (21 júní- 22 júlí)
Ástúðlegur og óöruggur í framkomu, hann er eins manns hundur og er mjög tryggur eiganda sínum. Shih Tzu í krabba merkinu líður ekki vel í miklum látum og stressi. Hundar í þessu merki hafa oft viðkvæman maga og ættu að vera fóðraðir á góðu þurrfóðri. Þessi varkári feimni hundur er ekki yfir sig hrifinn af heimsóknum.


Ljón (23 júlí- 22 ágúst)
Shih Tzu í ljónsmerkinu veit hver er kóngurinn á heimilinu og ekkért fær hann til að skipta um skoðun. Hann er mikil barnagæla og elskar þegar gestir koma til þín í heimsókn. Honum líkar vel að vera í sviðsljósinu, hann er glaður, orkumikill og tryggur og ef hætta stafar af, ver hann fjölskyldu sína. Krakkarnir í nágreninu munu elska Shih Tzu hundinn þinn.

Meyja (23 ágúst- 22 sept.)
Næmur og gætinn, honum líkar ekki mikill hávaði.
Shih Tzu hundar í þessu merki eiga það til að vera eins manns hundar. Matvandur, ekki láta það eftir honum að gefa honum þinn mat. Hann er tryggur húsbónda sínum og ef honum mislíkar eitthvað vita allir af því. Elskulegur, hann sparar ekki kossana.

Vog (23 sept.- 22 okt.)
Shih Tzu í þessu merki elskar alla og hann hefur andstyggð á því að vera skilinn eftir einn. Þessi Shih Tzu hundur verður strax einn af fjölskyldunni. Honum þykir gaman að láta bursta sig og baða, einnig finnst honum gaman að láta dekra við sig.

Sporðdrekinn (23 okt.- 21 nóv.)
Shih Tzu í sporðdrekamerkinu mun elska þig og vernda allt sitt líf. Hann er mjög minnugur og man vel eftir þeim manneskjum sem hafa verið góðar við hann eða hafa strítt honum. Hann er óttalaus og er góður varðhundur.


Bogamaður (22 nóv.- 21 des.)
Shih Tzu í bogamanninum eru þolinmóður og umhyggjusamur. Hann kann að bíða rólegur og er nákvæmur og sérstakur. Hann tileinkar sér yfileitt séstaka staði í húsinu sem hann sefur á t.d. undir borði, inn í skáp ogsfr.


Steingeit (22. des.- 19 jan.)
Hundurinn þinn fagnar þér og vinum þínum innilega. Líkamlega hraustur og örlítið klunnalegur, hann hefur gaman að börnum og nýtur þess að leika við þau. Án skynsamlegrar þjálfunar getur þessi hundur orðið erfiður.


Vatnsberinn (20 jan.- 20 mars)
Shih Tzu í vatnsberanum er vinalegur og tryggur. Hann er líklegur til að kúra hjá þér, t.d. meðan þú horfir á sjónvarpið eða liggja undir sólbekknum á sumrin þegar þú ert í sólbaði. Shih Tzu í þessu merki getur líka verið sjálfstæður og uppátækjasamur til dæmis alltaf að reyna að finna nýjar leiðir undir sófann til að ná í dótið sitt. Vatnsberar eru tryggir á allan hátt.

Fiskar (19.feb.- 20 mars)
Fiskarnir eru vingjarnlegir og ljúfir. Þeir gera allt til að gleðja húsbóna sinn. Þeim stendur alls ekki á sama um allt. Shih Tzu í fiskamerkinu er óeigingjarn og skapgóður. Þeir eru auðveldir í þjálfun og elska göngutúra, sérstaklega finnst þeim gaman að fá að hlaupa lausum.