. Á Íslensku
.

Fréttir
Ættbóka gagnagrunnur
Um tegundina
Hvolpar
Sýningar
Greinar
Ýmislegt
Tenglar
Gestabók
Netföng


Myndasafn
Gestabók



. In English
.

News
Pedigree database
The breed
Litters
Shows
Articles
Misc
Links
E-mail´s


Photogallery
Guestbook

 

Umhirða
Alla hunda þarf að hirða vel, sama hvaða tegund. Shih Tzu er með mikin, tvöfaldan og síðan feld sem þarf að hirða reglulega. Ef það er gert verður öll feldvinna mun auðveldari fyrir þig og hundinn. Ekki trassa það að snyrta hundinn reglulega þá verður það miklu erfiðara. Einnig er hægt að klippa Shih tzu hunda niður stutt þá verður öll feldhirða minni.

Sýningarhundur í fullum feld
Baða þarf hundinn á u.þ.b. viknu fresti með góðu sjampói og hárnæringu sérstaklega ætluð síðhærðum hundum.Skítugur feldur fer frekar í flóka en hreinn. Mundu feldhirða ætti að vera skemmtileg stund milli þín og hundsins!

Böðun
Gott er að fara yfir hundinn áður en baðað er og athuga hvort það séu flókar og leysa stærri flóka þá áður en hundurinn er baðaður. Bleytið hundinn fyrst og nuddið því næst sjampóinu vel í allan feldinn. Passið að ekki fari sápa í eyrun. Skola skal sjampóið vel úr á eftir. Næringin er sett í eftir að sjampóið sé allt skolað úr. StínaAnnað hvort er næringin svo skoluð léttilega úr eða hún skilin eftir í, en það fer eftir um hvernig næringu er að ræða. Þurrkið með hárblásara á eftir, passið að hafa ekki hitann hátt stillt, heldur ilvolgan, svo það brenni ekki hundinn og feldinn. Greiðið yfir feldinn á meðan þið þurrkið með bursta. Til eru sérstakir hundahárblásarar sem standa sjálfir sem gefur ykkur þá tvær lausar hendur.

Burstun
Bursta þarf yfir feldinn reglulega. Ekki bursta yfir alveg þurrann feld, betra er að bleyta yfir feldinn áður.. Notið góðan bursta til að fara í gegnum allan feldinn, líka undirfeldinn. Greiddu feldinn lag fyrir lag, ekki bara yfirborðsgreiða og verðu skipulögð/skipulagður svo þú vitir hvaða svæði þú ert búin að bursta. Ef þú finnur flóka leystu hann þá með höndunum eða burstanum og greiddu yfir með greiðu til að athuga hvort ekki hafi allt náðst út. Góðir burstar eru slikkerbursti (vírbursti) á verstu flókanna, pinnabursti til að greiða í gegnum feldinn, svínshárabursti er góður þegar verið er að blása, stálgreiður og pinnagreiða fyrir toppinn.

Annað
Klippa þarf hárin á milli þófanna. Setjið ávallt teygju í toppinn, svo hárin fara ekki í augun. Gott er að setja einnig teygjur í skeggið.

MániKlippa þarf klær reglulega . Fylgjast þarf með eyrum og augum. Ágætt er að hreinsa augu og skegg reglulega ef þarf með þvottapoka.

Hver hefur sína hentisemi í feldhirðu, með tímanum finnur maður sjálfur réttu leiðina sem hentar manni og hundinum best. Gott er að fá ráðleggingar til að fara eftir hjá ræktanda, öðrum eigendum tegundarinnar og hundasnyrtum.

Hundar klipptir stutt
Hundar sem ekki eru sýndir eða búnir að sýna, eru oftast klipptir stutt til að feldhirðan verði þar af leiðandi minni. Til eru skemmtilegar klippingar sem henta Shih Tzu vel. Baða þarf klippta hunda á u.þ.b. 2-3 vikna fresti og bursta eftir þörfum. Muna þarf að klippa neglur og undir þófum, og frá endaþarmi.

Hvolpar
Venja og kenna þarf hundinum strax sem hvolpi, gott er að bursta yfir hann r
eglulega með mjúkum hárbursta. Sestu á gólfið og veltu honum yfir á bakið í kjöltu þinni og burstaðu hann á maganum til að venja hann við. Snúðu honum svo við og burstaðu hann allan. Ágætt er að baða hvolpa tvisvar sinnum í mánuði og þurrka með hárblásara. Vendu hvolpinn á handfötlun á þófunum. Mundu að gera þetta skemmtilega stund fyrir hvolpinn. Talaðu hvetjandi til hans, leiktu við og verðlaunaðu á meðan á snyrtingu stendur. Mundu einnig að venja hann við að vera á borði og vera handfjatlaður þar.
Alex
Feldskiptin
Þegar hundurinn er í kringum 7-18 mánaða aldurinn fer hann úr hvolpafeldinum. Það er erfiðasta feldtímabilið og mjög misjaft milli hunda hve lengi það stendur yfir og hvenær það byrjar. Hugsa þarf mjög vel um feldinn á þessu tímabili svo hann fari ekki í flóka. Gott er að bursta yfir hundinn daglega þegar á þessu tímabili stendur. Þegar hundurinn er svo komin í fullorðinsfeld er umhirðan auðveldari.

tekið saman af Önju Björgu Kristinsdóttur