|
Uppruni
og saga Shih Tzu hundanna
Shih
Tzu var fyrst ræktaður í Tíbet í
Kína fyrir mörghundruð árum síðan.n
Talið er líklegast að Lhasa Apso og Pekinghundur
hafi verið aðal stofnhundarnir, til þess að
skapa Shih Tzu hundinn. Munkarnir ræktuðu þessa
tegund upp fyrir keisarahirðina í Kína.
Kínverjar töldu þá heilaga, þegar
Shih Tzu kom gangandi niður götu var siður að
víkja fyrir honum. Þeir töldu þá
endurholdgaða menn.
Að fá Shih Tzu að gjöf þótti
mikill heiður. Í mörg hundruð ár
var það siður hins andlega trúarleiðtoga,
Dalai Lama, að gefa kínverska keisaranum slíka
hunda af bestu gerð að gjöf. Kínverjar
voru tregir að hleypa Shih Tzu hundum úr landi,
það var ekki fyrr en 1930 sem kona að nafni
Lady Brown tókst að koma nokkrum úr landi.
Árið 1954 viðurkenndi FCI (Alþjóðlega
Hundaræktunarfélagið) tegundina.
Shih
Tzu tegundin var næstum útdauð í stríðinu,
sem betur fer tókst að bjarga henni og þökk
sé m.a. þeim hundum sem fluttir voru úr
landi.
Shih
Tzu þýðir Ljóna-hundur
Sagt
er að búddha Manjusri, goð lærdómsins,
hafi ferðast um heimsálfurnar fjórar í
prestagerfi. Með honum í för var lítill
"Ha PAH", gæluhundur. Þessi litli hundur
gat á svipstundu breytt sér í ljón
sem bar búddha á bakinu. Til eru myndskreytingar
af "Anda-ljóni" og "Hunda-ljóni"
á mjög helgum stöðum í Tíbet
og má þá m.a. nefna útskurð
á musterisstólpum. ,,Hundaljón"
voru talin jarðneskar verur og eru þekkt undir nafninu
"menegerie". Kenning Lama-manna um ljónin
er sú, að þau séu andar fjalla og
að ljónin hafi þann hæfileika að
geta flutt sig samstundis á milli staða og geta
verið sýnileg eða ósýnileg að
vild og geti breytt stærð sinni.
Myndskreytingar
eru tákn um " Gang Sing" eða "Snæljón"
og líkjast þau mjög Shih Tzu hundinum. Í
forsagnafræðinni er getið um snæljónið
og er það talið konungur allra dýra.
Máttur þess var svo mikill að þegar
snæljónið öskraði féllu sjö
drekar af himnum ofan. Eiginleikar snæljónsins
eru þrír: Geta til að stökkva, snúa
sér við og koma til baka gangandi á skýjabreiðu.
Rödd þess er rödd millivegar þ.e. milli
sannleikans og hugrekkisins og er hún hljómar,
þagna allir.
Þessi dulræna lýsing á Shih Tzu
hundinum á svo sannarlega við í dag um þennan
litla hugrakka hund, en nafnið Shih Tzu þýðir
einmitt Ljóna-hundur
|