|
Uppskriftin
af Shih Tzu
Það er ekki auðvelt að skilgreina persónuleika
Shih Tzu hunda. Til að skilja og upplifa persónuleika
þessa sérstæða hunds þarf maður
að eiga hann. James nokkur Mumford skrifaði yndislega
lýsingu í amerísku Shih-Tzu blaði
sem hljóðar þannig:
,,Engin veit hvernig
geldingarnar til forna fóru að því
að blanda saman... Og nú kemur uppskriftin af Shih
Tzu:
Skvetta
af ljóni, nokkrar teskeiðar af kanínu, nokkur
grömm af
heimilisketti, einn hluti af hirðfífli, smá
skvetta af ballerínu, ögn af gömlum kínverskum
karli, svolítið af betlara, matskeið af apa,
einn hluti selskópur, smávegis af bangsa og
afgangurinn er svo hundur
af kínverskumm og tíbetskum uppruna."
Þessi
dásamlega uppskrift gefur okkur til kynna hversu margbreytilegur
og sérstæður persónuleiki hans er.

|